Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Side 74

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Side 74
204 HELGAFELL eyinga; sr. Páll Pálsson á Prestbakka, fulltrni Vestur-Skaftfellinga; Indriði Gíslason á Hvoli, fulltrúi Dalamanna; Daníel Thorlacius í Stykk- ishólmi, fulltrúi Snæfellinga; Skafti Jósefsson á Grafarós, fulltrúi Skagfirðinga; Jón Pálma- son á Stóradal, fulltrúi Húnvetninga; Eggert Gunnarsson, fulltrúi Norður-Þingeyinga; Sig- hvatur Árnason á Eyvindarholti, fulltrúi úr Rangárvallasýslu; Ólafur Sigurðsson í Ási, fulltrúi Skagfirðinga. Nefndinni voru síðan afhentar bænarskrár þær, sem fundinum höfðu borizt um stjórnar- bótarmálið. Annars voru á þessum fundi og þeim næsta, sem haldinn var fyrri hluta dags, 27. júní, rædd önnur efni. VI. Um kvöldið 27. júní var 4. fundur settur, og lá nú fyrir nefndarálit í stjórnarmálinu. Framsögumaður nefndarinnar og formaður, sr. Benedikt Kristjánsson, tók fyrstur til máls og las upp nefndarálitið. Voru niðurlagsatriði þess sem hér greinir: „NIÐURLAGSATRIÐI í STJÓRNARMÁLINU 1. Að rita beinlínis lians hátign konunginum allra begnsamlegast ávarp í nafni liinnar islenzku þjóðar og bera ]>á bæn fram fyrir hann, að honum allra mildileg- ast mætti þóknast að veita meðfylgjandi undirstöðu- atriðum til stjómarskrár f.vrir Island sína allra lnestu staðfestingu, — og til vara: að hans konunglegu hátign mætli þóknast, að kalla sem allra fyrst saman þjóðfund hjer á landi með fullu samþykktaratkvæði, samkvæmt kosningarlögum 1849, og að fyrir hann verði lagt frum- varp til fullkominnar stjórnarskrár fyrir Island. 2. Að fundurinn kjósi þrjá af landsmönnum til að flytja þetta málefni fyrir hans hátign konunginn. og reyni að vinna þá til að takast þessa för á hendur fyrir full laun af þjóðinni, og 3. Að fundurinn riti ávarp til Alþingis, sem haldið verð- ur í sumnr, og sendi því afrit af giörðum fundarins, svo ])ví gefist kost á, að láta álit sitt í Ijósi um málefni þetta, og beini því í þá átt, er það sem rátfgefandi Alþingi álít- ur sjer hlýða.“ Því næst las hann upp frumvarp til stjórn- arskrár fyrir ísland svohljóðandi: „FRUMVARP til stjórnarskrár fyrir Island 1. gr. ísland er frjálst þjóðfélag útuf fyrir sig, og stendur í þvi einu sambandi við Dani, að það lýtur himim sama konungi og þeir. 2. gr. Island liefir lögbundna konungsstjórn í öllum islenzk- um málum og er löggjafarvaldið hjá konungi og alþingi í sameiningu, þó svo að þau lagafrumvörp verð.i að lögum, sem samþykkt hafa verið óbreytt á þremur al- þingum hverju eptir annað, þótt konungur liafi ekki veitt þeim sam]>ykki sitt, framkvæmdarvaldið er hjá konungi, fjárráðin hjá alþingi, og dómsvaldið hjá dóin- öndum. 3. gr. Hin nákvæmari skipun á löggjöf, dómum og stjórn landsins eptir 2. gr. skal ákveðin með lögum. 4. gr. Konungur er ábyrgðarlaus, hann er heilagur og frið- helgur. 5. gr. Nú hefir konungur eigi aðsetur á íslandi, og heldur lmnn jarl, er rekur erindi konungs og hefir ábyrgð fyrir honum einum. fi. gr. Með lögum skal ákveðið hve mikið fé íslandi beri að leggja á konungsborð. 7. gr. Jarlinn skipar í umboði konungs stjómarherra á Is- landi, sem hefir alla ábyrgð stjórnarathafnanna fyrir alþingi. 8. gr. Dómendur skera úr öllum ágreiningi um embættistak- mörk yfirvaldanna. 9. gr. Hin evangeliska Lúterska kirkja er þjóðkirkia á Islandi, þó er hverjum heimilt að hafa þá trú er hann vill, ef það hvorki raskar borgaralegri rósemi né góðum siðum. 10. gr. Tillögur, hvort heldur er um breytingar eður viðauka á stjórnarskrá þessari, má bera upp á löggefandi alþingi. Nái tillagan um breytingu á stjórnarskránni samþykki þingsins, skal slila alþingi þá þegar og stofna til al- mennra kosninga af nýju. Samþykki hið nýkosna alþingi ákvörðunina óbreytta og nái hún staðfestingu knnungs, þá hefir hún gildi sem stjórnarlög ÁkvörSun uni stundarsakir Fvrsta löggefandi alþingi kallar konungur saman eptir kosningarlögunum 28. sept. 1849. Á fundi að Öxará 27. júni 1873 (undirskriflir nefndannanna)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Nýtt Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.