Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Side 88

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Side 88
213 HELGAFELL Tunglið fölt um opinn skemmuskjá skímu sló. A hlemmi lá að vegg rauður haus með rotið skegg, og glennt rifið auga salti brennt, og skurð sverðs í eyra. Opnar Ongull hurð. Moldarfnykur, myrkur. Hregt hann fer, meyran strjúpa að tungli ber; í sár, granir augu og gisið hár, sem fyrr grófu salti slær, og spyr: Mun nú glotta lengur hetja sú er svamm svalar öldur, bjarndýrs-hramm og tröll bugað gat, sem gisti fjöll, úr haug gripi bar, og ramman draug á nótt lagði að velli? Víkur Ongull frá. Tunglið gægist fölt um skemmuskjá. Slík kvæði eru ekki einungis áhrifamikil í sjálfum sér, heldur veita þá aukalegu gleði, sem kemur af návist við einhvers konar fullkomnun. Þó að skáldgáfa Hannesar sé hófstillt og ofstopalaus er hún greinilega örlát og ósínk. Sjaldan eða aldrei vottar fyrir þving- unarblæ á málfari hans eða stíl: skáldgyðj- an er félagi hans og vinkona en ekki amb- átt. Það er athyglisvert um svo hugsunar- bundið skáld, hve ljóðagerð hans er eðli- ieg og sjálfvakin. Þrátt fyrir vitsmunalegt innihald, bera kvæðin stundum vitni um einkar viðfelldið andvaraleysi, sem liggur að vísu einkum í tón þeirra, þegar svo ber við, og ofurlítið skrýtnu persónulegu orða- lagi; samanber til dæmis Gamalmenni: Hve margoft þá er mœtum við þeim á stangli bak við hina finnst okkur sem við flettum orðabók, já feiknastórri... Frumleiki þarf ekki að láta mikið yfir sér: Innn á milli glittir í gömul andlit og góðleg, undir kostulegum húfum. Hannes hefir til að bera þokka, frjáls- leik og skynsemi, sem allt eru fremur sjald- gæfir eiginleikar í skáldskap, eins og stend- ur. Viðmót hans er óþvingað og feimnis- leysi hans við að nota gamalkunn róman- tísk orðasambönd, hugtök og tákn er oftast aðlaðandi, af því að hann er nógu mikið skáld, og veit, að hann segir það, sem liann meinar, en ekki það, sem hann ætti að meina, eins og vondu skáldin: A bláum skógum draumanna í dölum svefnsins Senn eru dagar sóleyjanna taldir. Sumarið reyndist furðu stutt í ár. Kvæði eins og þau, sem þessar línur eru teknar úr eru e. t. v. ekki mikill fengur frá slíku skáldi. En Sumnarnótt í Skagafirði svnir í fáeinum hendingum, hve hispurs- laust og vel hann notar hefðbundnar mynd- ir og rómantískt skáldamál við hliðina á sterkri, beinni og raunsæilegri lýsingu: Gullbúinn himinvagn kvöldsins er horfinn við eyjar í þögul grunn. Fjörðurinn lognbiár og landið lögzt til værðar með munn við munn. Hestar nasla á votum völlum. vinnulúnir menn sofa í ró, fá heilnæma hvild undir herðabreiðum fjöllum. Þar á móti á hann til barokkt hug- myndaflug, djarfar, langsóttar, en rökrétt- ar, útfærðar myndir, sem nálgast hið fá- ránlega, samanber í kirkjugarði, niðurlags- erindið: Og allir leggjn frá sér hin notuðu nöfn á nýlega spýtu eða stein. Og vinirnir koma og krjúpa í góðu veðri um helgar á hnjánum, hengja með varúð gegnum kumblanna þök sængurhimna vaxandi viðarróta: svo þeir sem annars einskis fú að njóta eiga þess kost um sumarlanga tíð við fuglasöng að seytla upp eftir trjúnum. Auk þess sem þetta erindi lyftir upp í æðra veldi hinum skemmtilegu, „andvara- lausu“ eiginleikum Hannesar, sem ég drap á áður, fæ ég ekki betur séð en það sé nýj- ung í íslenzkum skáldskap: Það innleiðir blátt áfram nýja myndræna rökvísi. Það er ósvikin metciphysical mynd, eins og kall-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Nýtt Helgafell

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.