Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 93
BÓKMENNTIR
223
band íslands við Monte Cassino munka, því
að listaverk gátu borizt milli fjarlægra staða
eftir ýmsum leiðum, sem nú eru torraktar.
En það vottar fyrir slíkum hugsunarhætti
hjá Selmu, þar sem hún vill setja dómsdags-
myndina í samband við hina ermsku biskupa,
sem sagðir eru hafa verið hér á 11. öld, senni-
lega grísk-kaþólskir menn. Hyggur Selma
þessa menn í rauninni hafa verið Basilus-
munka, og fjallar síðasti kafli bókarinnar um
þá. En enga tilraun gerir hún t.il að rökræða
þær aðrar leiðir, sem fyrirmynd dómsdags-
myndarinnar gat borizt eftir hingað norður, og
kemiir þar þó margt til greina. En þetta er
nokkurt einkenni á þessari góðu bók. Efnið
er lagt umbúðalaust og ekið í einstefnu. Mér
finnst höfundurinn hefði átt að velta því
meira fyrir sér, skoða það betur í krók og
kring, því að frá því gefur sýn í margar áttir.
Þess er að vísu óbilgjarnt að krefjast. að
Selma segði hér hið síðasta orð um hvað eina,
en ég held að bók hennar hefði orðið betra
fræðirit, ef hún hefði grafið meira kringum
efnið, gefið sér betra tóm til að nostra við
það kjörviðarkefli, sem hamingjan skolaði
upp í hendur henni á heillastund.
Bókin er með afbrigðum fallega úr garði
gerð, og Selmu er það sómi að hafa ekki sætt
sig við neitt nema það bezta. Efnið á það
skilið. Myndirnar eru ágætar, en hefðu mátt
vera vísindalegar á borð bornar. Nokkuð
svipað má í rauninni segja um textann. Bókin
er skrifuð á einföldu máli, flúrlaust og hvers-
dagslega, og kann ég ekki illa við það, en við-
vaningsbragur nokkur í fræðimannlegum
vinnubrögðum varpar nokkrum skugga á
verkið. Meginkostur er, að efninu er vel rað-
að, og þess vegna er bókin skemmtileg af-
lestrar.
Ég hef leyft mér að finna nokkuð að þessari
bók. En jafnframt er mér ljúft að segja, að
ég tel Selmu Jónsdóttur eiga heiður skilið
fyrir að hafa rofið myrkrið, sem grúft hefur
yfir stórmerkilegu íslenzku listaverki. Bók
hennar hefur fært út kvíar fornrar íslenzkrar
listsögu og til hennar verður lengi vitnað.
Kristján Eldjárn
Rit Pálma Hannessonar
Bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur nú lok-
ið við að gefa út rit Pálma Hannessonar í
þremur samstæðum bókum, samtals 884 síður.
Fyrsta bókin, Landið okkar (308 bls), kom
út haustið 1957. 1 henni eru 30 útvarpserindi,
landfræðilegs og sögulegs efnis, og auk þess
formáli að myndabókinni ísland. Þess er get-
ið við hvert erindi, hvenær það var flutt, en
allmörg erindanna voru áður prentuð, og er
það nokkur yfirsjón að geta þess ekki um
leið, — einkum ef höfundur hefur endurskoð-
að og breytt þeim til prentunar. Meðal þess-
ara erinda mætti sérstaklega nefna Frá Móðu-
harðindunum, Skoðanir erlendra manna á ís-
landi fyrr og nú (átta erindi), Askja og loks
Landið okkar, spurningar og svör um ferða-
leiðir, örnefni og sögustaði.
★
Önnur bók Pálma, Frá óbyggðum (325 bls),
kom út haustið 1958. í henni eru ferðasögur
og landlýsingar, áður prentaðar í Rétti, And-
vara, Hralcningum og heiðavegum, Árbók F.
t. og Iléraðssögu Borgfirðinga. — Aftast eru
nokkur sýnishorn úr dagbókum Pálma, óunn-
in og áður óprentuð. Auk þess eru í bókinni
20 ljósmyndir eftir Pálma, mikil bókarprýði,
því að hann var myndasmiður góður.
Nokkuð skortir á æskilega vandvirkni við
útgáfu þessa bindis. Greinarnar í Rétti (Ak.
1927—1928) um Arnarvatnsheiði, Kjöl og
Eyvindarstaðaheiði eru um fyrstu rannsókn-
arferðir Pálma og hið fyrsta, sem eftir hann
birtist á prenti. Hann hafði engan fylgdar-
mann, kunnugan, og hreppti vont veður með
köflum. Þar gætir því sums staðar ókunnug-
leika á gömlum örnefnum eða nýnefni sett á
gamalþekkt kennileiti. Iíeiðingjaskarð, sem
P. H. nefndi svo, milli Kráks á Sandi og
Langjökuls mun t. d. heita Þröskuldur frá
fornu fari. Er ekki trútt um, að byggðamönn-
um, sem þarna eiga afréttarlönd, þykir þetta
miður. — Hefði verið æskilegt, að nokkrar
athugasemdir hefðu fylgt þessum þáttum í
nýrri útgáfu.
Leiðin wpj) í Botnaver var prentnð í Ár-
bók F. t. 1940. Þar er meinleg prentvilla,
Langasjó í stað Litlasjó. Iíefur prentvilla þessi
verið endurtekin í útgáfu Menningarsjóðs
(bls. 21).
Eldgígurinn hjá Frostastaðahálsi (2. mynd,