Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 95

Nýtt Helgafell - 31.12.1959, Page 95
Form landslagsins - form málverksins Undur landslagsins eiga sér margar hliðar. Ég ætla til að mynda ekki að ræða um þá jarðfræðilegu í þessu stutta spjalli enda skortir mig undir- stöðuþekkingu til að rýna í hana að nokkru gagni. Á hinn bóginn langar mig til að minnast örlítið á formrænu hliðina, velta henni fyrir mér stutta stund, svo að ég verði fróðari um eðli hennar frá sjónarmiði listgrúskarans. Hvað er hún? spyrja menn. Lítum á fjallið, sem blasir við augum Reykvíkinga. Það er ekki Esjan, sem borgarinn hrósar í daglegri umræðu. Það er fjallið, sem málararnir keppast við eða kepptust að minnsta kosti við að lýsa í myndum sínum: Akrafjall. Jón Stefánsson hefur gælt við þessa hnútu á lík- ama landsins oftar en einu sinni, að ég hygg. Hún freistar Schevings á stundum. Og þeir eru sannast að segja fáir landslagsmálararnir, sem hafa treyst sér til að láta hana afskiptalausa með öllu. En áður en ég fer að hreyfa við henni frekar á þessu líkingamáli, langar mig til að minnast á íslenzkt landslag yfirhöfuð og formræna hlið þess íslenzkt landslag — margir hljóta að vera mér sammála um, að það er afarólíkt ásjónu Danmerkur til að mynda. Danmörk býr yfir yndislega veikbyggðum og mjúkum línum en ísland rís úr hafi sem tignarleg klettaborg, köld og miskunnarlaus á að líta. Og þegar inn yfir landið er komið vex sú tilfinning innra með manni, að brunasandarnir, svörtu fjöllin og hvítu jöklarnir séu í rauninni heimkynni dauðans, hins sterka og seiga dauða, sem aldrei verður rekinn út úr samfélagi okkar. En jafnvel dauðinn getur verið bráð- lifandi. Það vitum við mennirnir bezt, ef við beinum huganum inn að okkur sjálfum. í vitund minni og vitund þinni er hann að minnsta kosti lifandi staðreynd, snara, sem hangir yfir lífi einstaklings. Á sama hátt er íslenzkt landslag lifandi í dauða sínum og rúmlega það. Inn í kyrrláta formmynd þess smýgur andi tröllslegra átaka, einhvers konar demón náttúrunnar. Það belgir út fjallið eða ásinn og þrengir sér inn í hvern krók og kima.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Nýtt Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt Helgafell
https://timarit.is/publication/1049

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.