Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1966, Side 32

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1966, Side 32
Timarit Máls ug mcuniiigar lijarli bernskuduldir sem eru eigin- legar öllum púrítönskum þjóðfélög- um. Hyldýpið sem gín við banda- risku bermönnunum í Víetnam, þegar góðmennska þeirra er dregin í efa, er ekki einungis þrúgandi sektar- kennd, heldur og kvíði ungbarnsins sem leitar sér skjóls fyrir viðbjóðn- uin og óttanum við holdið, með því að upphefja og helga líkamsburði sína í þjónustu einhverrar göfugrar baráttu (sbr. hetju Villta vestursins gegn vonda Indíánanum). Síðan þróasl vitund þeirra um syndir holds- ins, öryggisleysið á kynferðissviðinu og efasemdin uin karlmannlegan full- burðugleika þeirra í mikilmennsku- brjálæði. Mikilmennskuduldin birtist m. a. í hneigð bandarískra hermanna, skólapilta og knattleikameistara til að flíka vöðvaafii sínu í tíma og ótíma og eins í liinu að ,öflugasta herveldi heimsins1 virðist um megn að viður- kenna eða jafnvel ímynda sér að það geti beðið lægri hlut í hernaðar- eða stjórnmálaátökum, þegar svo ber undir. Mikilmennskubrj álæðið knýr Bandaríkjainenn til að hrærast í heimi eilífra sannana; þeir þurfa allt- af að vera að sýna fram á yfirburði sína. Allt kerfið riðar til falls við minnstu fyrirstöðu. Yfirdrottnunin er að þeirra dómi algild grundvallar- regia allra mannlegra samskipta, jafnt í auðvaldsþjóðfélagi nútímans sem alþjóðaviðskiptum, og hver sá er reynir að afnema þessa reglu skai barinn niður með öllum tiltækum ráðum, þ. á. m. hinum sefasjúka andkommúnisma sem eirir engri skepnu. Niðurslaða vor er sú að vér meg- um með engu móti láta skelfast af hinmn svokallaða lífsþrótti Banda- ríkjamanna. Hann byggist að tals- verðu leyti á taugaveiklun þjóðar- innar og sjónhverfingum sem spretta af óstyrk hennar. Bardömurnar og götusnáparnir í Víetnam hafa skilið þetta til hiitar; þau vita hvar er að finna snöggasta hlettinn á verndur- um sínum þegar þau fara á stúfana til að hafa út úr þeim nokkra pjastra. Því væri fráleitt af oss að ætla að koma á laggirnar jafn voldugum eða voldugri framleiðsluöflum en Banda- ríkjamenn hafa stofnað til af kvíða- blandinni og dulinni valdagræðgi. Af því hlytist ekki annað en ófrjó sam- keppni og orkueyðsla, auk þess sem hættan af heimsveldisstefnu þeirra væri ekki þar með úr sögunni. Það veltur meira á hinu að oss takist, með rökum skynseminnar, að fletta ofan af mikilmennskuduld þeirra með jafn árangursríkum hætti og unglingarn- ir í Víetnam hafa gert með framkomu sinni. Skrípamyndin sem Bandaríkja- menn munu draga upp af sjálfum sér ef þeim tekst hvorki að fá Víet- nambúa til að trúa á helgisögn sína né sýna öllum heimi og sér sjálfum 126
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.