Tímarit Máls og menningar - 01.12.1970, Page 20
Tímarit Máls og menningar
fluttust til Ameríku. Aðeins 33% karlmanna liöfðu kosningarrétt (83% í
Grikklandi á sama tíma!). Fátæktin útá landsbyggðinni var ólýsanleg.
Verkalýður borganna lifði einnig við kröppustu kjör. En yfirstéttin varði
forréttindi sín af dæmafáu miskunnarleysi, her og vopnaðri lögreglu var
beitt hvenær sem hætta þótti á að verkalýðurinn gæti að einhverju leyti
raskað valdahlutföllunum sér í hag. Þó gat ekkert komið í veg fyrir að sósíal-
ískar og marxískar hugmyndir næðu að breiðast út.
Georg Lukács komst í uppvexti sínum ekki í nein teljandi kynni við fátækt
mikils meirililuta samlanda sinna. Sem ríkismannssonur í ríkismannahverfi
Búdapestar ólst hann upp við önnur skilyrði en fjöldinn. Þess var líka langt
að bíða að hann gerði sér fulla grein fyrir í hverskonar þjóðfélagi hann
lifði. En þess var ekki jafnlangt að híða að hann kæmist í nokkra andstöðu
við nánasta umhverfi sitt. Efnahagur fj ölskyldunnar gerði honum kleift að
leggja stund á það sem hann lysti. Hugur hans dróst æ meir að bókmenntum
og fagurfræði. En hversu innilokaður sem þessi ungi fagurkeri var í heimi
stéttar sinnar, þá fór samt ekki hjá því að hann yrði var við þau kýli skipu-
lagsins sem mest bar á, lögregluofbeldið, spillinguna, lýðræðisskortinn, af-
leiðingar vaxandi iðnvæðingar kapítalismans o. fl. Hann tók að líta á þetta
þjóðfélag sem andstæðu allrar sannrar listar. Og hann gerði uppreisn, en sú
uppreisn var í litlum tengslum við raunveruleikann, hún var á andlegu plani
sem leiddi hann skjótt á vit þýzkrar hughyggju, jafnvel hverskyns rökfælni
(irrationalisma), dulrænu og hvatadýrkunar. Skáld dagsins var Stefan
George. En samtímis söng hann natúralismanum lof, þeirri bókmenntastefnu
sem þá var „róttækust“ og leitaði uppi samfélagsveruleikann, oft með af-
hjúpandi skerpu, en flúði hann ekki. En natúralisminn vakti hann ekki til
pólitískrar vitundar, þó ekki leyni sér samúð hans með verkalýðsstéttinni og
þj óðernis-minnihlutabrotum í Ungverj alandi. Það er hughyggjan og róman-
tísk einstaklingshyggj a sem setja mest mark á allt er Lukács skrifaði framað
heimsstyrjöldinni fyrri.
Að loknu doktorsprófi í þjóðfélagsvísindum við háskólann í Búdapest 1906
hélt Lukács til Heidelberg og lagði stund á heimspeki. Þar komst hann í kynni
við nýkantíanismann svonefnda. í Múnchen hélt hann námi sínu áfram,
m. a. hjá Max Weber, höfuðpaur þýzkrar félagsfræði. Aðaláhugamál hans
um þessar mundir voru þó heimspeki og fagurfræði. Frá Munchen fluttist
hann til Berlínar, þar sem hann kynntist Georg Simmel og heimspeki Wil-
helms Dilthey.
210