Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1970, Side 68

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1970, Side 68
Tímarit Máls og menningar tilfinningu, og nær ekki að sjá alla áhrifavalda samfélagsveruleikans. Verk hans eru samsett úr ótal smáatriðum, sem honum tekst oft að lýsa af hreinni snilld, enda eru áhrif þeirra höfuðstyrkur verkanna. En þau eru sértæk, þau eru ekki í senn einstök og týpísk, þau gegna einangruðum, listrænum áhrifa- hlutverkum en veita heildarverkefninu ekki aukna merkingu. En þó hugveru- leg mynd Kafka af raunveruleikanum sé sannari og listrænni en flestra ann- arra módernista, þó meistaraleg lýsing hans á ákveðnu tilfinningaástandi, þ. e. angistinni, eigi sér enga hliðstæðu hjá öðrum höfundum, þá er samt heims- mynd hans ósönn að dómi Lukácsar. En ekki aðeins vegna þess að hún er takmörkuð, heldur líka af því að Kafka samsamar (ídentífíerar) hlutveruleik- ann hugveruleikanum. Þetta á hann sameiginlegt með öllum módernistum. Og þessi samsömun felur í sér það yfirskilvitlega. Og listrænt tj áningarform þess er allegorían. Hún hafnar ekki aðeins samfélagsveruleikanum sem undirstöðu listrænnar frásagnar, heldur líka öllum ásköpuðum tilgangi mannlegs lífs. Lukács viðurkennir gildi allegoríunnar fyrir myndlist, og einnig fyrir bók- menntir fyrri tíma, þegar menn höfðu ekki ennþá yfirunnið trú sína á yfir- náttúrleg öfl, en hann fordæmir hana sem listform á okkar tímum þegar hún felur í sér afneitun á vísindalegum og heimspekilegum landvinningum síð- ustu alda. Lukács vitnar í Walter Benjamin, sem bezt allra hefur kannað allegoríuna í bókmenntum seinni tíma. Hann segir: „Allegoríur eru það í ríki hugsunarinnar sem rústir eru í ríki hlutanna.“ í þeim birtist saga mann- kynsins sem „gaddfreðin frumjörð11 og þjáningar þess verða þar ekki lesnar úr andlitsdráttum hins lifandi manns, heldur hauskúpum hinna dauðu. Og ennfremur: Ekkert hefur sérstakt áskapað gildi, aðeins yfirskilvitlegt gildi í yfirskilvitlegu gildiskerfi. „Sérhver persóna, sérhver hlutur, sérhver afstæða geta merkt hvað sem er.“ Og, segir Lukács, þegar hvert atriði er rifið úr raun- verulegu sögulegu samhengi sínu hættir það að vera margþættur og óaðskilj- anlegur hluti margþætts veruleika og verður einstætt einsog sérhver stafur stafrófsins. Allegorían getur aldrei falið í sér neina heildarmynd sem því nafni gæti neínzt. Hana skortir samhengi og vídd, hana skortir frumþætti tíma, sögu, hreyfingar og breytingar. Og allegoríur Kafka eru engar undan- tekningar. Heimur þeirra er „yfirskilvitlegur tómleiki“ þar sem lífið hefur frosið og storknað. Og hann er ekki afstæður, heldur algildur, eilífur og óbreytanlegur. í „Wider den missverstandenen Realismus“ teflir Lukács Thomasi Mann gegn Kafka, og þá skiljum við betur hvað hann á við þegar hann segir, að allegoríuna skorti vídd og samhengi. í verkum Thomasar Manns felst angistin, 258
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.