Tímarit Máls og menningar - 01.12.1970, Blaðsíða 132
Tímarit Máls og menningar
krafti og eldmóði tókst Jóni að telja álirifamenn í stjórnarskrifstofunum í
Washington á sitt mál, og var hann sendur sem fulltrúi Bandaríkjastjórnar og
Grants forseta á herskipi norður til Alaska til þess að kanna landkosti og
möguleika á íslenzku landnámi þar nyrðra.
Þegar Jón kom aftur úr þessari för, hafði áhugi hans á landnámi íslendinga
í Alaska hins vegar dofnað, og að auki var hann nú fullur heimþrár, enda fór
það svo, að árið 1875 fluttist hann aftur heim til Islands, breyttur maður, ró-
legri og víðsýnni en fyrr. En þótt Jón Ólafsson væri orðinn afhuga íslenzku
landnámi í Alaska, þegar hann kom heim vorið 1875, var ekki þar með sagt,
að hann væri að fullu horfinn frá stuðningi við Vesturheimsferðir. Þvert á
móti mun hann hafa komið til íslands í þeim hug að hvetja enn til búferla-
flutninga vestur um haf. En hvort sem Jón Ólafsson hefur komið til íslands
sem Vesturheims-„agent“ eða ekki, þá er a. m. k. víst, að aldrei urðu störf
hans á þeim vettvangi mikil.
Um sumarið 1875 fór Jón austur á land og settist að á Eskifirði sem
heimiliskennari hjá Carli kaupmanni Tulinius.8 Þar stofnaði Jón til prent-
smiðj ureksturs og hóf um vorið 1877 að gefa út blaðið Skuld. Þessari út-
gáfustarfsemi hélt Jón áfram á Eskifirði til ársins 1880, en þá hélt hann um
haustið til Kaupmannahafnar þar sem hann las lög í einkatímum9 og bjó sig
til þingsetu, en Sunnmýlingar höfðu kosið hann til þings uin sumarið 1880.
í Kaupmannahöfn gaf Jón út þau tölublöð, sem enn vantaði, til þess að
fjórða árgangi Skuldar væri lokið, en kom heim vorið 1881 og sat í fyrsta
sinn á þingi þá um sumarið. Jón sat á þingi til 1890. I ársbyrjun 1882 hóf
hann enn að gefa út Skuld í Reykjavík, og kom einn árgangur hennar út þar,
en um áramótin 1882—83 keypti Jón Þjóðólf af Kristjáni Þorgrímssyni og
sameinaði þá blöðin tvö. Eftir það gaf Jón Þjóðólf út til ársloka 1885, en þá
hætti hann að mestu blaðamennsku um sinn, en var þó enn um hríð einn af
ritstjórum Iðunnar „gömlu“.
Árið 1890 hélt Jón öðru sinni til Vesturheims, að þessu sinni til Kanada,
og gerðist þar ritstjóri Lögbergs ásamt Einari Hj örleifssyni. Því starfi gegndi
hann í rúmt ár, en gerðist þá ritstjóri Heimskringlu. Einnig ritstýrði Jón á
þessum tíma blaði, er íslendingar í Winnipeg gáfu út og nefndist Öldin.
Árið 1893 lagði Jón enn land undir fót og hélt suður til Chicago. Þar
starfaði hann að ýmsum blöðum skandinavískra landnema, en gegndi einn-
ig bókavarðarstarfi í Newberry Library þar í borginni.10
Jón sneri aftur heim árið 1897 og tók þá við ritstjórn blaðs, sem nefndist
Nýja Öldin og var á vegum Jóns Vídalíns konsúls. Þetta blað stóð um skamma
322