Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 90

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 90
Tímarit Máls og menningar dráttarlaust: að láta „menn finna hver var kjarninn eða inntakið í baráttu þessa tíma, eins og hún var háð og skilin (letur- breyting mín) af þeim er nefnast „rauðir pennar“. Hér er því sjálfu viðfangsefninu markaður bás. Hér talar maður um sína eigin samtíð, maður, sem stóð einna fremstur í fylkingu í baráttu þeirrar tíðar og reynir að útskýra fyrir fáfróðri ungri kynslóð og skilningssljóum atvinnugagn- rýnendum þá viðburði, þá strauma, er mestu réðu á fjórða áratug aldar okkar. Þessi kynslóð vígfúsra baráttumanna var að sjálfsögðu haldin sínum tálsýnum, svo sem allar aðrar kynslóðir sögunnar frá þeirri stundu, er hin fyrsta var flæmd úr Paradís fyrir logandi sverði kerúbanna. En hún vann sitt dagsverk í þjónustu þess- arar sögu, hún vann ekki þau afrek, sem á var kosið, veruleikinn varð ekki í samræmi við drauma hennar og vonir, kannski vegna þess, að draumarnir og vonirnar voru há- stigulli en fyrr hafði gerzt, en þar fyrir finnst mér lítil ástæða til þess, að sú kyn- slóð, sem á enn öll afrekin óunnin, hafi sér ekki annað til dundurs en að míga á ölturu hennar. Og þá mætti kannski geta þess, að þessi kynslóð, sem fékk ekki af- stýrt heimsstyrjöld, fékk þó sigrað að lokum þann höfuðóvin mannkynsins, sem hafði hleypt henni af stað. Áratugur „rauðra penna“ hófst á heims- kreppu og honum lauk í heimsstyrjöld. Þegar heimskreppan stóð sem hæst voru atvinnuleysingjar alls auðvaldsheimsins 50 milljónir að tölu. Þegar heimsstyrjöldinni lauk lágu 50 milljónir í valnum, sumir á vígvöllunum, sumir í heimahögunum. „Rauðir pennar", á íslandi og erlendis, skráðu viðvörunarorð sín á tímum þessara tölvísu staðreynda. Þeim var hleypt af stokkunum þegar sigurverk kapítalismans var með þeim hætti, að bankastjóri Eng- landsbanka lýsti því yfir á fundi alþjóð- legra fjármálasnillinga í Lundúnum, að þeir botnuðu hvorki upp né niður í þessu flókna gangverki. í sama mund og auð- valdið lá eins og rotnandi hræ fyrir hunda og manna fótum í kreppu sinni, gerðust þau tíðindi austur í álfu, að Rússland, ólæst, fátækt og lúsugt, lýsti því yfir, að það skyldi lyfta sér á fáum árum í sess iðnaðarríkja, að dapurleg fortíð þess skyldi víkja fyrir glæstri framtíð. Atvinnu- áætlun, mannlegt vit og framvíddir skyldu ríkja á þeim hnetti, þar sem áður var við stjórn náttúruaflið blint og heimskt. Hver sá sem var ungur á þessum árum veit bezt, hve björt hún var þessi stjarna, sem þá reis á kolsvartri festingunni. Og þá urðu „rauðir pennar" til, sem er efni bókar Kristins Andréssonar. Enginn er eyland er ekki aðeins saga íslenzkra rithöfunda á útskeri, sem leitast við að finna á sjálfu sér lappirnar, heldur spannar bókin þá alþjóðlegu hreyfingu skálda og listamanna, ekki aðeins þeirra, sem höfðu þegar helgað sig verkalýðs- hreyfingunni, heldur og hinna, sem höfðu fram til þessa átt sér lögheimili í búðum borgarastéttarinnar. Hinir síðastnefndu stóðu á þessum áratug frammi fyrir þeim háska, að sú menning, sem þeir höfðu svarið hollustu, var í voða stödd frammi fyrir fasismanum í elztu ríkjum vestrænn- ar menningar, Þýzkalandi og Ítalíu. Það er hinn mikli kostur bókar Kristins Andrés- sonar, að hún tengir saman skaut þessa áratugar, íslenzka og erlenda rithöfunda, að ógleymdu því valdi, sem streymdi frá Ráðstjórnarríkjunum, er stóð miðsvæðis í tilveru áratugarins, hið efnahagslega og menningarlega baksvið þeirrar baráttu, sem þá var háð um allan heim. Það er því engin tilviljun, að Kristinn ver svo miklu efni bókar sinnar í hin íslenzku samtök, sem reyndu að koma því inn í kollinn á íslendingum, að hin andnazíska harátta 168
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.