Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Page 13
Tvö viðtöl um íslenzka stjórnmálasögu
ekki svo mikið sem að fá vitneskju um, hvað þar gerSist. Þannig báSu
Bandaríkin þá um land af okkar landi til þess aS gera þaS aS sínu landi.
Og margir ætluSu, aS síSan ætti aS stjórna okkar gamla landi frá þeirra nýja
landi. Gegn þessu reis þjóSin“.
Hvernig vildu sósíalistar skipa málum Keflavíkurflugvallar eftir að her-
stöðvum hafði verið neitað?
ViS vildum aS herstöSin yrSi lögS niSur og völlurinn notaSur eingöngu
fyrir farþegaflug.
Hví sneruzt þið öndverðir gegn Keflavíkursamningnum 1946?
ViS snerumst gegn Keflavíkursamningnum af sömu ástæSum og viS sner-
umst gegn herstöSvabeiSninni 1945. ViS litum svo á, aS þar meS værum viS
aS kasta fyrir borS ákaflega mikilvægri meginreglu vopnlausrar þjóSar, hlut-
leysinu. ViS töldum enga vörn í bandarískri herstöS heldur þvert á móti.
Ef til ófriSar kæmi, kallaSi hún yfir okkur þá hættu, aS ísland yrSi styrj-
aldarvettvangur og meS vopnabúnaSi nútímans stofnaSi hún tilveru þjóð-
arinnar í bráðan voSa. A friðartímum mundi hún hafa í för með sér allan
þann ófögnuð, sem fylgir erlendum herstöðvum hvar sem er í heiminum og
á ófriðartímum yrði hún lífshættuleg.
Var ykkur kunnugt um gang viðrœðna Olafs Thors og fulltrúa bandarísku
stjórnarinnar sumarið 1946?
ViSræðurnar við fulltrúa Bandaríkjastjórnar fóru fram bak við Sósíal-
istaflokkinn. En við vissum að viðræðurnar fóru fram, og Ólafur Thors átti
við mig mörg samtöl um þær, þar sem við skiptumst á skoðunum. Hversu
mikið hann sagði mér veit ég ekki. Ég sagði Ólafi strax afdráttarlaust að
samningurinn þýddi stj órnarslit, en það var honum mjög á móti skapi og
það var eins og hann vildi ekki trúa því. Hann rökstuddi samningsgerðina
með því, að Bandaríkin mundu sitja hér sem fastast, ef enginn samningur
yrði gerður, á þeim forsendum að ekki hefði verið gerður friðarsamningur
við Þýzkaland og stríðinu því ekki lokið. Með öðrum orðum: Hann taldi
þetta vera nauðungarsamning, sem hefði þó þann kost, að það væri hægt að
segja honum upp með nákvæmlega tilgreindum fyrirvörum.
Eitt kom fram í þessum einkasamtölum okkar, sem sumum kann að þykja
fróðlegt og meinlaust að segja frá því nú, eftir hátt í 30 ár. Ólafur hafði sagt
219