Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Page 33
Manníeg þrenning
björn : 14. mars.
(Þögn.)
JÓn: Hvernig í ósköpunum veist þú það?
björn: (drjúgur): Ég veit það. Maður gleymir sosum ekki öllu þó börnin
manns séu alltaf aS telja manni trú um aS maSur sé orðinn kalkaður
og vitlaus.
(Þögn.)
JÓn: (hróðugur): Nú veit ég hver þú ert! - Já, ég get nú ennþá lagt saman
tvo og tvo þó ég hafi orðið sjötíu og fégra á höfuðdaginn. Þú ert hróðir
hennar Guðnýjar minnar heitinnar. Þessi sem fór til Noregs. - En þú fyrir-
gefur, ég get ómögulega munað hvað þú heitir. Ekki af því að ég sé farinn
að kalka. Neinei. Hún GuSný talaði bara aldrei um þig.
björn: Ég hef aldrei komið til Noregs. Ég sigldi á England á stríðsárunum.
ÞaS er allt og sumt sem ég hef flækst í útlöndum.
JÓn: Þú ert þá kannski ekki bróðir hennar Guðnýjar?
björn: Oneinei.
JÓn: En þú kannast við mig? Við . . . við höfum kannski einhvemtíma
verið saman til sjós? - Já, maður getur auðvitað ekki komið þeim öllum
fyrir sig sem maður hefur verið með. Þetta er soddan urmull. Og þér að
segja, þá hef ég aldrei verið mannglöggur. ÞaS var einhver sem gaukaði
því að mér í sj ötugsafmælinu mínu, að ég hefði alla tíð verið gleggri
á fiskimið en fólk. (Hlœr.)
björn: Við höfum aldrei verið saman til sjós.
JÓN: Nú? - ViS höfum þá kannski aldrei hist?
björn: Ojújú.
JÓN: ÞaS hlýtur að vera langt síðan.
björn: Já, þaS eru meir en fjörutíu ár. ÞaS var í Hafnarfirði. Þú gafst
mér á hann fyrir framan HansensbúS.
JÓn: Ég? Gaf ég þér á hann? (Hlœr.) Nei, nú ferðu þó aldeilis kollhnís í
mannaruglingi, lagsmaSur. Ég hef aldrei lamið nokkurn mann. Hvorki
fyrir framan HansensbúS né annarsstaðar. FriSsamari maður en ég hefur
ekki lifað í þessu landi. Henni Guðnýju minni þótti stundum nóg um. Þó
ég hafi aldrei verið mikið uppá Biblíuna, þá held ég hafi nú samt oftast
boðið vinstri kinnina þegar einhver var að ybha sig við mig. Sem var nú
ekki oft. - Ef ég væri svo ríkur að eiga brennivínsdreitil, þá þyrði ég að
veðja við þig: þú veist ekki hvað ég heiti.
björn : Þú heitir Jón Ásgeir Brynjólfsson.
239