Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Page 49

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Page 49
Ut œviminningum klýfur fjallið upp á hábrún og heitir Reiðslugil. Skolgrár lækur hendist fram úr gilinu, yfir þjóðveginn á hæðinni og fram í Heiðargil. Þegar snjóa leysir og í rigningum er lækurinn svo vatnsmikill að hann má heita ófær gangandi fólki og því lieitir þarna Reiðslugil. í þetta sinn komst ég þurrum fótum yfir lækinn á grjótstiklum við veginn, og hljóp niður brekku vestur Giljareitinn. Þarna er fjallið bratt og giljum skorið og undir- lendi aðeins mjó ræma milli fjalls og árgils. í fjallið skerast tvö gil sem heita Hraungil (eða Hleinargil), í þeim eru lækir bergtærir, þeir feta létt eftir hraunlitu hellugrjóti og lyfta sér fram af brúninni með galsa og gleðilátum. Á móti Giljareitnum rís Kinnafjallið hátt og virðulegt, þar er lítið um kletta en grasgeirar fikra sig upp að kuldaskilum. Skagfirzkar rollur með lömbin sín kroppa ótroðið gras á strjálingi og þama er ein og ein hrossskepna á stangli, sem sýnir að sumir vilja vera einir, líka meðal hrossa. Vestasta gilið í reitnum er Dagdvelja, það gil er mikið að klettum og torfærum og varð lækurinn ófær ef rigndi og þá varð ferðafólk að dvelja við gilið þar til dró úr vextinum. Skógarhlíðin tekur við vestan Giljareits, hún er grasi gróin og þar eru engir klettar. Nafn hlíðarinnar bendir til að öll hafi hún verið skógi vaxin, en nú sést þar engin hrísla. Þessi hlíð hefur þá náttúru að þar festir sjaldan snjó, þó norðurheiðin sé með snjóþyngstu svæðum landsins. Fram við heiðarána, næst Dagdvelju, heitir Skógarnes, þar er gamalt hæjarstæði. Ég gekk fram í nesið að stugga við nokkrum hrossum til vara og tyllti mér niður í tóttina þurra og grasþétta. Svo tók ég upp nestisbitann sem var tveir flatbrauðsfjórðupartar með smjöri, það var gott að hvílast um stund. Fremur hefur kotið verið kostarýrt, túnið mýrkennt og þýft og engjarnar snapir á snöggum mýrasundum, féð hefur legið við opið og kroppað sinu- stráin á vetrum, en þar var til bjargar að snemma sló í jörð á vorin. Úr Skógarnesinu sér inn á Krókárdalinn og þar undir klettabelti í botni dalsins urðu þrír menn úti fyrir löngu síðan. Sagan hermir að fyrirliði þessara manna hafi borið peninga allmikla vestan um heiðar og héruð til amtmannsins á Möðruvöllum. Þeir komu síðla kvölds að Krókárgerði og báðust gistingar, en komið var fram á vöku og hríðarveður. Bóndinn í Krókárgerði taldi sig ekki geta hýst svo marga menn vegna þrengsla og vísaði þeim á útihús að hírast í. Ekki vildu ferðamennirnir hlíta því og gengu óboðnir í bæinn og voru þar um nóttina. Morguninn eftir var bóndi 255
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.