Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Síða 60

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1973, Síða 60
Tímarit Máls og menningar skilja þeirra háttalag. Ég fann til með þeim þegar hart var, og á vorin gat ég oft lifað mig inn í söng þeirra og lífshamingju. Oxnadalurinn var snjóþungur og það gat tekið langan tíma að brjótast til næsta bæjar. En hann bjó yfir þeirri kyrrð sem öræfum einum er gefin, kyrrð sem umlykur mann seiðmagni einverimnar, við nakin brjóst náttúr- unnar. Kyrrð sem aðeins er rofin af veðrum. Allt í einu hættir kannski að rigna, þokan lyftir sér hærra og hærra yfir fjöllin og sólin kemur ofan í dalinn, heit og fagnandi, þá er loftið svo tært, að fjöllin eru rétt hjá maniii og þó hefur sjóndeildarhringurinn víkkað. Á slíkum dögum átti hjartað svo létt með að slá, vegna þess hve lungun drógu að sér heilnæmt loft og þá reyndi ég æfinlega að yrkja um það hve dásamlegt væri að lifa, þrátt fyrir fátækt cg skort. Önnur kyrrð, sem eins og dottar undan veðrum, getur stundum verið dimm og ógnandi. Grátittlingarnir hafa enga eirð í sínum beinum, heldur stjákla til og frá og það er alltaf að koma að þeim einhver styggð og hrafn- arnir koma þá svo óvanalega nálægt manni, fljúga síðan upp og eins og stinga sér í veðuráttina og þetta gera þeir hvað eftir annað, þá liggur eitt- hvað í loftinu sem leggst að manni og reynir að þrýsta sér inn í vitundina. Ég man eftir mörgum slíkum fyrirboðum, og um veturnætur 1919 var einmitt einn slíkur dagur. Rökkrið var að síga niður af himninum, fyrst fyllti það allar lægðir og gilin í Hjallanum, síðan var eins og hka væri breitt yfir hæðir og hóla og fjöllin komu alveg til dalsins og áin sem rann eftir dalnum var allt í einu eins og hún rynni þétt við fæturna á manni, ég heyrði svo greinilega hvernig hún gutlaði við grjótið, og flúðir og smáfossar voru með gráthljóði þetta kvöld. Norðurhiminninn var orðinn kolsvartur það sem til sá, glæta var enn í skýjum eftir dalbotninum og allra snöggvast rof- aði í stjörnu yfir Vaskárdal, stjörnu sem brosti eins og mannsauga um leið og hún hvarf. Kyrrðin var svo þung eins og himinninn væri kominn að því að detta. Ég var að koma frá gegningum, hafði hýst kindurnar og hestinn og var búinn að gefa seinni gjöfina. Svarthöfðótta forustuærin sem varíhópn- um, vildi fara snemma heim að húsinu sínu þetta kvöld, svo ég var með fyrra móti að. Ég tróð garðaló meðfram gisnum hurðum og fyrir neðan þær ef hann skyldi snjóa, síðan hraðaði ég mér heim að bænum, enda var tíkin hún Drífa orðin óróleg og rak upp smáýlfur. Allt í einu kom dálítil vindstroka utan úr logninu og bar með sér nokkur snjókorn. Ég lyfti lokunni á bæjar- hurðinni og þokaði mér innfyrir, og beið eftir hríðinni sem var á skrið- unni milli Gils og Varmavatnshóla og ég vissi með sjálfum mér að nú 266
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.