Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Side 56

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Side 56
Tímarit Máls og menningar mikil innan fræðanna, bæði vegna þess að saga viðkomandi fræðigreinar dýpkar oft skilning manna á henni eins og hún horfir við á líðandi stund, og einnig vegna þess að yngri greinar fræðanna geta oft og tíðum lært sitthvað nýtilegt af sögu þeirra vísindagreina sem taldar eru elstar og þroskaðastar á meiði vísinda og fræða. Sífellt vandaðri og gagnrýnni rannsóknir á heim- ildum vísindasögunnar hafa leitt í ljós að þar er hreint ekki allt sem sýnist eða eins og síðari tíma menn vilja vera láta. Meðal annars hafa ýmsir þættir sem margir mundu kalla hugmyndafræði eða öðrum svipuðum nöfnum reynst mun þyngri á metunum í vísindasögunni en áður var talið. Mun á engan hallað þótt fyrrnefndum Tómasi Kuhn sé þakkað það að hafa átt manna drýgstan þátt í að vinna þessum nýju viðhorfum brautargengi. Vís- indasagan hefur reynst mjög frjósamur akur hugmynda og viðhorfa og hef ég kosið að notfæra mér hann í því sem hér fer á eftir um hugmyndafræði vísindanna í sögu og samtíð. Hvaða vísinda f Aður en við dembum okkur út í umræðu um hugmyndafræði vísinda er auðvitað eðlilegt að spurt sé hvað við meinum með orðinu vísindi. Og víst er um það að ýmsir mætir menn hafa spurt svo á undan okkur. En þegar stórt er spurt verður oft lítið um svör. Svo fer einnig um mín eigin svör í þessu tilviki enda þótt ég viti fullvel að margir hafa bæði talið miklu varða að hafa sem skýrust svör við þessari spurningu og einnig talið sjálfa sig hafa fundið slík svör, þ.e. tiltölulega einfaldar skilgreiningar á því hvað sé vísindi og hvað ekki. Eg tel hins vegar að slíkum spámönnum hafi öllum mistekist þetta ætlunarverk sitt, og sumum hrapallega eins og t.d. hinum fræga heimspekingi Karli Popper.6’ Það lengsta sem ég hef sjálfur komist í átt að einhvers konar samnefnara allra vísinda er á þann veg að tengja megi öll vísindi við hugtök eins og skynsemi, samhengi, yfirsýn, opin boðskipti og betri tök manna á umhverfi sínu og allri tilveru. Eg játa auðvitað fúslega að slík „skilgreining“ er harla óljós og tiltölulega víð, enda er henni ætlað að ná yfir vísindi allra tíma og einnig yfir þá sprota í fræðagarði samtímans sem kunna síðar að eiga eftir að verða að voldugum trjám. En jafnvel þótt við hefðum einhverja hugmynd um hvað við meinum með vísindum, þyrftum við ekki að vera miklu nær um hugmyndafræði vísinda, enda kemur í ljós þegar að er gáð að hún hefur verið mjög breytileg bæði eftir tímum og eftir fræðigreinum. Við verðum því að þrengja viðfangsefni okkar í stuttu erindi þannig að megináherslan liggi á hugmyndafræði vísinda á okkar dögum þótt ég kjósi síðan að vísu að fjalla um það efni með stuðningi af sögunni. Ég mun með öðrum orðum hafa sögu vísindanna að 174
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.