Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Blaðsíða 66

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Blaðsíða 66
Tímarit Máls og menningar Sem betur fer hefur mönnum tekist að ná öruggum tökum á ýmsum öðrum þekkingarsviðum eftir daga Ptólemeosar. Sú þróun heldur vonandi áfram þótt það liggi nánast í hlutarins eðli að við getum ekki sagt fyrir fram hvað eigi eftir að reynast örugg þekking. Meðal annars orkar tvímælis að leggja beri eins mikla áherslu á stærðfræðina sem tryggingu fyrir örygginu og Ptólemeos virðist gera. Eins og eðlilegt er munu flestir vísindamenn nútímans sjá fleiri litbrigði í þeirri mynd en hinn snjalli stjörnufræðingur fornaldar. Húmanismi vísindanna Sjálfsagt bregður mörgum lesanda í brún að sjá þessa fyrirsögn hér eða eru vísindi og húmanismi ekki nánast andstæður? Er maðurinn að fara út af sporinu eða hvað? En hér fer sem fyrr að vitnisburður sögunnar gefur okkur nýja sýn. Það er semsé rauður þráður í vísindasögunni að trúa á manninn, skynfæri hans og skynsemi, dómgreind og skilning. Við Islend- ingar þekkjum þetta viðhorf úr fornbókmenntum okkar þar sem talað er um menn sem „trúðu á mátt sinn og megin“. Einn skemmtilegasta vitnisburð- inn um þetta úr sögu vísindanna er að finna í ritum Galíleós. Hann kemst t.d. svo að orði þar sem hann er að fjalla um kreddufasta fylgismenn Aristó- telesar: Það er vitaskuld hægara að fletta upp í atriðisorðaskrám og lesa texta en að rannsaka niðurstöður og semja nýjar og endanlegar sannanir. Auk þess virðist mér að við gerum of lítið úr sjálfum okkur og misbjóðum jafnvel líka sjálfri náttúrunni (og ég gæti bætt við Guðlegri Forsjón) þegar við reynum að læra af Aristótelesi það sem hann hvorki vissi né gat komist að, í stað þess að ráðgast við eigin skynfæri okkar og skynsemi. Því að náttúran hefur auðveldað okkur að skilja hin stórkostlegu verk sín með því að færa okkur athuganir tvö þúsund árum lengur en hún lét Aristótel- esi í té, og gefa okkur auk þess tuttugu sinnum skarpari sjón.15) Mér hefur alltaf fundist það vera eðlilegur hluti af þessari mannhyggju eða húmanisma Galíleós að hann gerði sér far um að ná til almennings á Ítalíu í vísindaritum sínum. Þannig gerði hann vísvitandi uppreisn gegn þeirri aldagömlu hefð að slík rit skyldu skrifuð á latínu. Hann samdi nær öll rit sín á ítölsku til þess að allir gætu lesið þau, líka þeir sem höfðu ekki gengið í háskóla, en um þá segir hann: 184 Af því að þeir geta ekki lesið hluti sem eru þeim ,eins og gríska', þá sannfærast þeir um að í þessum ,stóru bókum séu stórkostleg nýmæli í
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.