Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Síða 73

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Síða 73
I Granada var glapurinn framinn með angan blóms og aldina inn í sálina til að vaxa þar. Og var að hugsa um Federico García Lorca sem fasistar myrtu í Granada. E1 crimen fué a Granada, í Granada var glæpurinn framinn, — svo nefnist minningarljóð sem hið aldna skáld Antonio Machado orti eftir vin sinn og skáldbróður fallinn fyrir hendi fasistanna. Machado dó sjálfur tveim árum síðar í Pýrineafjöllum á flótta undan sigri hrósandi fólskunni í þessu ógæfusama landi; þar sem hugprýði og örlæti andans manna og alþýðu dugði ekki til að hefta framsókn þeirra sem smánuðu lífið og virtu ekki dauðann, blindir og hjarð- villtir. Eg gekk gegnum sígaunabyggðina Albaicin, framhjá undarlegum húsum þeirra eða hellum sem eru grafnir inn í gljúpt bergið í hlíðinni, með hvítleskjaða framhlið, og inni eru allir veggir hvítir, og á veggjunum glóa rauðleitir koparmunir pottar og könnur og keröld sem þar hanga, og þar sviftast marglit skæru pilsin síðu í dansi með lófaskellum sem fylgja kastanjettum eða fingurgjöllum að meitla hrynjandi með hælastappinu, og er nú helgað pyngju ferðamannsins, iðulega leikgleðin blandin heimsreyndri slægvizku. I þessum lágu skjannahvítu hellishvelfingum þar sem skuggarnir eltast um gólf og veggi við bjarma frá mörgum kolum úr koparnum rauða, hrökkva undan hrópum sem hvetja sönginn og sveifur dansenda og stapp, líkt og logi augun svört, leiftri blik, svikul þrá blossi. Og barnungar blómarósir gerast fullorðnar drósir í táli, stoltlegar á hálum brautum hjá hinu tímalausa drama sem býr í sannleik flamenkódansins, í sáí hans, — sem er ekki hér. En í kring sitja digrar matrónur og klappa hljóðfallið, unz líkt og fuðri upp minning í hjarta, og þær varpa sér í þyril dansins líka. Fíægt hægt fyrst, eins og gömul gufulest takist af stað, með áhrifsvaldi úr tíma sem er liðinn og varla raunverulegur. Ferðugar nornir með vald frá öld hindurvitna sigla dansandi með fjaðrandi mjúkum umfangsmiklum holdum. En hrafntinna í ungu auga kann að rista í gegnum vef þann óvænt og pikka í hjartað hins saklausa heimalnings úr svölu norðri sem tálfúst ásælist falan draum, að flytja heim sem dofnandi ilm í luktum buðki. Eg gekk gegnum þessa byggð, og hugsaði um skáldið myrta sem sagði heiminum frá þrá og stolti sígauna sem hann gerði að tákni hins einmana manns sem býr með dulinn harm í sínu hjarta í miðju glaums. 191
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.