Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Page 79

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Page 79
Páll Theódórsson: Ritvinnsla með tölvum 1. Inngangur Fram á annan áratug þessarar aldar var allt prentað mál handsett hér á landi. Mikil breyting varð í prenttækninni þegar fyrsta setningarvélin kom til landsins árið 1914, því einn vélsetjari afkastaði jafn miklu og 5 menn við handsetningu. Fyrir rúmum áratug kom ný setningartækni, þar sem tölva leysti setn- ingarvélina af hólmi og síðustu ár hafa blýsetningarvélarnar verið að hverfa úr notkun. Nú er svo til allt prentað mál tölvusett hér á landi. Forsenda hinna öru breytinga á síðustu árum er örtölvan og dvergrásir rafeindatækn- innar. Tímabili hinna öru framfara í prenttækni lýkur þó ekki þegar slökkt verður á síðustu blýsetningarvélinni því á næstu árum verður vafalítið ör þróun á þessu sviði. En nú munu breytingarnar ekki einungis snerta prentsmiðjurnar, heldur mun hin nýja tækni ná inn í vinnustofur rithöf- unda, blaðamanna, þýðenda og annarra þeirra sem semja eða búa texta til prentunar. Einfaldar ritvinnslutölvur munu ekki einungis færa okkur nærri hljóðlaust rittól í stað ritvélarinnar, heldur tæki sem mun auðvelda allar breytingar á skrifuðum texta, og loks mun það samtímis vinna verk setn- ingartölvunnar svo ekki verður nauðsynlegt að setja textann í prentsmiðju og lesa próförk. I lok þessa áratugar verður sennilega jafnfátítt að vélrituðu handriti bóka verði skilað í prentsmiðju og nú að sett sé eftir handskrif- uðum texta. Eg held að styttra sé í þessar breytingar en menn gera sér almennt ljóst og því tímabært að kynna nokkuð hina nýju tækni á vettvangi sem Tímariti Máls og menningar. Ýmsar breytingar hefur þurft að gera á ritvinnslukerfunum til að þau réðu við íslenska stafrófið, sem hefur fleiri bókstafi en hið enska, sem kerfin eru gerð fyrir. Ég mun fyrst fjalla hér nokkuð um þessar breytingar, lýsa síðan hvernig ritvinnsla í tölvum fer fram og ræða kosti og möguleika þessarar tækni, þá mun ég lýsa nokkuð þeim tækjabúnaði sem þarf til ritvinnslunnar og að lokum ræða um líklegar framfarir í tækninni á komandi árum. 197
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.