Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Page 83
Ritvinnsla með tölvum
RITVINNSLA MEÐ TöLVUM
1. Innganqur
Fram á annan áratuq þessarar aldar^var allt prentai
mál handsett hér á landi. Ári* 191é komitil landsins
r~ ______________________________'
fyrsta setning^véliníSetningtexta vari nú mun
•f 1 jótvirkari .
Mynd 2: Utprentun nálaprentara af upphafi þessarar greinar í fyrstu gerd. Leiörétt-
ingar og breytingar hafa verið skrifaðar á litprentunina.
prentsmiðjunnar. Hafi textinn verið villulaus í ritvinnslutölvunni verður
hann það líka í setningartölvunni. Þannig færist setning textans að mestu til
höfundar hans. Þetta sparar því setningarvinnu að mestu og ekki þarf að lesa
bæði handrit og próförk. Setjari prentsmiðjunnar þarf þó að leggja síðustu
hönd á textann: setja inn fyrirsagnaletur, raða texta á síður og fleira.
Vissulega er mikill ávinningur að spara setningu og allmikla vinnu við
prófarkalestur, en meginkost tölvuritvinnslunnar tel ég þó þann hve auðvelt
er að breyta textanum.
4. Vélbúnaður
Til eru tölvukerfi sem eru hönnuð sérstaklega fyrir ritvinnslu. Við flest
ritstörf eru þó einfaldari og ódýrari kerfi fullnægjandi. Mynd 1 sýnir eitt
slíkt kerfi. Þau kosta nú um 50 til 100 þúsund krónur (í jan. 1983) og
samanstanda af eftirfarandi einingum: tölvu, leturborði, skjá, skífutæki og
prentara. Tvær eða fleiri af þessum einingum geta verið sambyggðar, t.d. eru
leturborð og skjár oft sambyggð og nefnist tækið þá skjáriti.
Leturborðið er svipað og á venjulegri ritvél nema hvað nokkrir takkar
koma til viðbótar. Þegar textinn er saminn er unnið á svipaðan hátt og þegar
skrifað er á ritvél, nema nú kemur tex*inn fram á skjánum en ekki á
pappírsörk ritvélarinnar. Textinn er varð.eittur í innra minni tölvunnar.
Þegar slök,rt er á tækinu þurrkast allt út, sem hefur verið skrifað í minnið.
Til að varðveita textann er hann því fluttur yfir á segulskífu, þar sem hann er
skráður með svipaðri tækni og þegir tal og tónar eru skráðir á segulband.
Þegar hann er tekinn til vinnslu að nýju er hann „lesinn“ af skífunni og fluttur
inn í innra minni tölvunnar. Skífurnar geyma oftast 50—100 vélritaðar síður.
m
TMMVI 201
L