Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Page 99

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1983, Page 99
Tvö rit um bókmenntasamanburð hann líkingar með sögunum og ritum þessum. Annars er líklegt ef spak- mælanotkun hefur verið jafnrík og Hermann segir að þau hafi verið orðin almennt góss. Og auðvitað er ekkert því til fyrirstöðu að þau hafi verið felld inn í munnlegt frásagnarefni eins og bóklegan lærdóm. Enda er nokkur undansláttur fólginn í því af hálfu Hermanns þegar hann segir: Um dæmi þau, sem hér verða tínd úr Hrafnkels sögtt og tekin til samanburðar við latnesk rit, er það skemmst að segja, að sumir orðskviðirnir kunna að vera af norrænum rótum runnir, þótt svipaðir séu latneskum setningum. (bls. 36) Verður þá vart séð að sumar líkingarnar sem hann tínir til séu annað en rökstuddar tilgátur rétt eins og hann telur niðurstöður af rannsóknum á arfsögnum um sagnaefni hljóti að vera. Það er því óþarfi hjá honum að kasta rýrð á rannsóknir annarra fræðimanna á öðrum þáttum verkanna ekki síst þegar hægt er að samræma sjónarmiðin. Það hefur t. d. Lars Lönnroth sýnt í verki sínu, Njáls saga: A Critical Introduction (Berkeley, 1976). Þar færir hann rök að því að ýmislegt af efni sögunnar og frásagnarmynstrin séu sótt í arfsagnir en á hinn bóginn séu ýmsar hugmyndanna sóttar í erlend rit. Eru niðurstöður hans einmitt dæmi um það hverju unnt er að áorka í fornsagna- rannsóknum ef leiðum er ekki lokað fyrirfram af hleypidómum og meinlok- um eins og títt hefur verið og Hermann er ekki laus við. T. a. m. virðist hann gera ráð fyrir að arfsagnir séu sannfræðilegar. Hitt er réttara að jafnvel þær sagnir sem hafa gengið af raunverulegum atburðum og fólki hafa aflagast svo í meðförum að sannleikskjarninn í þeim getur verið næsta lítill. Hermann á þakkir skildar fyrir að fást við og benda á erlendar hliðstæður ýmissa hugmynda í Islendingasögum. Slíkar rannsóknir hafa verið allt of lítið stundaðar, líklega m. a. vegna þess að menn hefur skort þekkingu á þessum þætti miðaldafræða. Aður hefur hann í ritum um Hrafnkels sögu fjallað um sameiginleg atriði og skyldleika hennar og útlendra rita sem til voru í norrænum þýðingum, Alexanders sögu, Gyðinga sögu og Stjórnar. I ritgerð sinni, Grafizt fyrir um Grettlu rætur bendir hann ekki aðeins á hliðstæður við ofangreind latínurit heldur einnig merki um hugmyndir í Grettlu sem er að finna í ýmsum þýddum ritum, svo sem Samúelsbókum, Jobsbók, Davíðssálmum, Prédikaranum og Antoníus sögu. Hermanni er auðvitað ljóst að siðfræðin er aðeins einn þáttur verkanna. Hann segir í umfjöllun sinni um Grettis sögu: Við getum . . . talað um þrenns konar merkingu eða gildi Grettlu, eftir því hvort við tökum hana sem lýsingu á fornum atburðum TMM VII 217
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.