Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Side 36

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Side 36
Tímarit Máls og menningar 4. Hann þarf að taka sögu með atburðarás og samtöl fram yfir þá sem ekkert slíkt hefur. 5. Hann þarf að hafa séð kvikmynd eftir bókinni. 6. Hann þarf að vera tilvonandi rithöfundur. 7. Hann þarf að hafa ímyndunarafl. 8. Hann þarf að hafa gott minni. 9. Hann þarf að eiga orðabók. 10. Hann þarf að búa yfir listrænum skilningi. Nemendurnir voru mjög hallir undir tilfinningalega samsömun, atburðarás og félagsleg, efnahagsleg og söguleg viðhorf. Eins og þið hafið vafalaust getið ykkur til er góður lesandi sá sem býr yfir ímyndunarafli, minni, orðabók og listrænum skilningi — en þann skilning hyggst ég reyna að þroska með sjálfum mér og öðrum hvenær sem tækifæri gefst. Raunar er notkun mín á orðinu lesandi afar losaraleg. Það skrýtna er nefnilega að það er ekki hægt að lesa bók, það er einungis hægt að endurlesa hana. Góður lesandi, virkur og skapandi lesandi er sá sem les aftur. Og nú skal ég útskýra ástæðuna. Þegar við lesum bók í fyrsta sinn verðum við að færa augun með erfiðismunum frá vinstri til hægri, línu eftir línu, blaðsíðu eftir blaðsíðu og þessi flókna líkamlega áreynsla sem það kostar okkur að kynnast efni bókarinnar stendur í vegi fyrir listrænum skilningi. Þegar við horfum á málverk þurfum við ekki að hreyfa augun á neinn ákveðinn hátt jafnvel þótt myndin, eins og bókin, búi yfir dýpt og framvindu. Við fyrstu kynni okkar af málverki skiptir tímaþátturinn raunar engu máli. Þegar við lesum bók þurfum við tíma til að kynnast henni. Við höfum ekkert sérstakt skynfæri (eins og við höfum augað þegar málverk er annars vegar) sem grípur heildarmyndina og getur síðan notið smáatriðanna. En við annan eða þriðja eða fjórða lestur förum við á vissan hátt að umgangast bókina eins og málverk. Við megum hins vegar ekki rugla auganu, þessu óhemjulega snilldarverki þróunarinnar, saman við hugann, ennþá óhemjulegra afrek. Bókin, hverrar gerðar sem hún er, höfðar fyrst og fremst til hugans. Hugurinn, heilinn, hríslingurinn í mænunni eru einu tækin sem nota ber við bóklestur. Ur því að þessu er þannig varið ættum við að velta fyrir okkur þeirri spurningu hvernig hugurinn starfi þegar fýlulegur lesandi stendur frammi fyrir sólríkri bók. Það fyrsta sem gerist er að fýlan rýkur burt og lesandinn gefur sig anda leiksins á vald. Það er oft erfitt að byrja á bók, einkum hafi hún hlotið hrós frá fólki sem ungum lesanda finnst innst inni of fornt í skapi ellegar alvöruþrungið, en takist að yfirstíga þennan hjalla er umbunin ríkuleg og fjölbreytt. Þar sem listsnillingurinn beitti ímyndarafli sínu við 506
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.