Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Side 70

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Side 70
Tímarit Máls og menningar kvennabókmenntirv hafi leitt menn út í kreddur eða einhvern ófrávíkjan- legan „sannleika“, þá er kominn tími til að vefengja þann sannleika og ögra honum. Þess vegna er líka gott að fram komi ögrandi karlabókmenntir eins og t.d. Hjartað býr enn í helli sínum eftir Guðberg Bergsson. Undanfarinn áratug hefur verið gríðarmikil gróska í kvennarannsóknum í bókmenntum, t.d. á Norðurlöndunum og í Bandaríkjunum, og undanfarið hefur ekki hvað síst verið könnuð afstaða kvenrithöfunda til bók- menntahefðarinnar, til viðtekinna gilda innan bókmenntanna. Athygli hefur þá nokkuð sjálfkrafa beinst að þeim kvenhöfundum sem í meira eða minna mæli hafa hafnað þeirri hefð, og er andóf þeirra iðulega af módernískum toga. Kvenhöfundar hafa gegnt mikilvægu hlutverki í formgerðarbyltingu módernismans, einkum kannski í enskumælandi bókmenntum; koma fljótt í hugann þær Virginia Woolf, Dorothy Richardson, Djuna Barnes og Gertrude Stein. Sá íslenskur bókmenntafræðingur sem mest hefur stundað kvennarannsóknir, Helga Kress, hefur á undanförnum árum einmitt sýnt mikinn áhuga á verkum Svövu Jakobsdóttur sem er eindregnasti módernisti íslenskra kvenhöfunda.10 Hinu er ekki að neita að þeir kvenhöfundar sem ætla að fjalla um stöðu og vanda nútímakonunnar hafa flestir hverjir leitað til þess hluta bók- menntahefðarinnar sem hefur að geyma hvað ljósasta umfjöllun félagslegra vandamála, þ.e. til hins hefðbundna raunsæisprósa. Þetta gerist þá oft án tillits til þess að hefð þessi er að mestu mótuð af karlhöfundum, eða þess hversu mikill vandi fylgir því í raun að fara svona troðna slóð og ætla sér samt að veita lesendum nýtt eða óvanabundið sjónarhorn á raunveruleikann og samfélagið. Svava Jakobsdóttir hefur einmitt oftar en einu sinni haldið því fram að hefðbundið raunsæi fleyti áfram vanabundnum hugsunum og hugmyndum um lífið og veruleikann. Hún er sér einkar meðvituð um viðtöku verka sinna, lætur sér sérstaklega annt um hvernig þau eru lesin. — Jonathan Culler fjallar í nýlegri bók um það hvernig karlmenn hafa í raun mótað lestrar- og túlkunarhefð í bókmenntarannsóknum, og telur hann tímabært að velta fyrir sér hvort ekki sé hægt að lesa öðruvísi, leita að öðru í textanum en vanalegt er og túlka hann í nýju ljósi; í rauninni að “lesa sem kona“." Að sjálfsögðu má þetta ekki leiða ti! einsýni í túlkunum; varasamt er t.d. að meta formgerð eða bókmenntalegt gildi texta eftir því hvaða afstaða til kvenna birtist í þeim. En spurningin er hvort lesendur, jafnt konur sem karlar, geti víkkað túlkunarsvið sitt, hafi vilja til að bæta sjónarhorni konunnar inn í túlkun sína á textum sem fjalla um mannleg samskipti og samfélag. Eg tel að Svava vilji beinlínis stuðla að slíkri viðtöku verka sinna með 540
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.