Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Page 100

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Page 100
Tímarit Máls og menningar sem kennd er við raunhyggju og efahyggju. Raunstefnumenn 20. aldar hafa gjarnan litið á hann sem fyrir- rennara sinn. Meginhugmynd Humes í siðfraeði má lýsa sem svo, að siðferði snúist um tilfinningar fremur en um skynsemi eða þekkingu. Þetta þýðir, til dæmis, að Hume vill neita því sem Sókrates hafði kennt, að illska sé ein mynd fávísi, einhvers konar skortur á skynsemi eða þekkingu. Hume heldur því fram í staðinn að slæmt siðferði sé, ef svo má segja, ákveðin brenglun í til- finningalífinu. Þessu tengist sú skoðun Humes, að skynsemin ein og óstudd geti aldrei ver- ið aflvaki athafnar, heldur séum við æv- inlega knúin til athafna af geðshæringu eða tilfinningu. Þessum meginatriðum í kenningu Humes eru gerð ágæt skil í Siðferði og mannlegu eðli, þó svo að Páll sé að dómi þess sem þetta ritar mildari gagnvart hugmyndum Humes en þær eiga skilið. Mér virðist nefnilega kenning Humes um tilfinningarnar og skynsemina að mörgu leyti afar loðin og óklár og engan veginn eins áhugaverð og hún sýnist á yfirborðinu. Hume teygir svo á tilfinningahugtakinu en þrengir hins vegar skynsemishugtakið svo mjög, að staðhæfingin um að skynsemin geti ekki verið aflvaki athafna reynist næsta ó- merkileg, jafnvel þótt sönn sé sam- kvæmt þeim skilningi sem Hume leggur í hugtökin. Páll getur þess (bls.33) að gagnrýni Humes á skynsemina sem aflvaka beinist einkum að hugmyndum ákveðinna samtímamanna Humes, og hitti hún þar beint í mark. Þetta má eflaust til sanns vegar færa. En þessir samtímamenn Humes eru nú flestum gleymdir öðrum en sagnfræðingum á sviði nýaldarheimspeki, og fæ ég ekki séð að ástæða sé til að halda þessari gagnrýni Humes á hugmyndir þeirra sérstaklega á lofti. Það er til dæmis mjög vafasamt að þessi gagnrýni snerti á nokkurn hátt hugmyndir forngrískra heimspekinga, sem flestir virðast hafa gert ráð fyrir að skynsemin geti stjórnað gerðum okkar. Og hún á ekki heldur við í tilviki hversdagslegra staðhæfinga sem stundum heyrast á borð við þá, að fólk eigi ekki að láta tilfinningarnar hlaupa með sig í gönur heldur láta skynsemina ráða. Siðferði og mannlegt eðli er á margan hátt mjög vel skrifuð bók. Höfundi tekst að gera tyrfin efni auðskilin hverj- um hugsandi lesanda án þess þó að slaka á nákvæmniskröfum. Páll er í senn rök- fastur, agaður og tæpitungulaus í hugs- un og máli. Málfar og stíll er yfirleitt í ágætu lagi. Eigi að síður verður það að játast að bókin olli þeim sem þetta ritar nokkrum vonbrigðum, enda má gera miklar kröfur til þess sem Páll S. Ardal lætur frá sér fara um Hume og um sið- fræði. I fyrstu var mér ekki fullljóst hvað óánægju minni olli, því eins og fram hefur komið hefur bókin marga góða kosti. Eftir talsverða umhugsun komst ég að þeirri niðurstöðu, að helsti galli hennar sé sá að höfundur er of bundinn við að gera grein fyrir hug- myndum Humes. Mér er vel ljóst að þetta kunna að virðast afar ósanngjörn ummæli: Er ekki yfirlýst markmið höf- undar einmitt að gera grein fyrir hug- myndum Humes? Hvers vegna að ásaka hann fyrir að gera grein fyrir því sem hann segist vilja gera grein fyrir? Því er til að svara, að vafasamt er hvort lýsing á siðfræðihugmyndum Humes eigi brýnt erindi á íslenskan bókamarkað, og all- tént held ég að Páli takist ekki að gæða þessar hugmyndir Humes slíku lífi að 570
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.