Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1999, Page 153

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1999, Page 153
DRANGEYJARSUND OG NÓBELSHÁTÍÐ ur“, og persónugerfingur þeirra í nútímanum var Halldór Laxness. Ef þessi túlkun er rétt, mætti segja að Drangeyjarsundið og Nóbelshátíðin „kallist á“: í fyrra skiptið vann nútímamaður á nýjan leik frægðarverk fornkappa, í síð- ara skiptið stóð annar nútímamaður í sama hlutverki og forn skáld og tók við tékka úr hendi jöfurs. Til þess að hliðstæða skáldsins og kappans væri full- komin þyrffi helst eitthvert nútímatónskáldið að semja tónverk sem jafnað- ist á við symfóníu Jóns Leifs. Best gæti það verið ópera og væri þá hlutverkaskipun augljós: Halldór Laxness (tenór), Jónas frá Hriflu (bassi), Laxdæla (sópran koloratúra) og svo deus ex machina, Svíakonungur (barytón). Ég vil nú ljúka þessum pistli með stuttu dæmi. Það er að vísu fremur létt- vægt og sjálfsagt aukaatriði í þessu máli, en af sonarlegri pietate fmn ég mig samt knúinn til að gera þessa litlu athugasemd. í frásögn sinni dregur höf- undur sérstaklega fram það atvik þegar austasti hluti Hringbrautar var skírður upp og nefndur Snorrabraut, svo er jafnvel að sjá að hann telji at- burðinn táknrænan fyrir það nýja hlutverk sem „höfundurinn“ var að fá í þjóðarsálinni og hann bendir á að sjálfur Sigurður Nordai hafi setið í nafna- nefndinni sem ákvað breytinguna. En nú vill svo til að þetta nafn lá víðar í loftinu, eins og sumir sagnfræðingar myndu segja. Árið 1947 gaf móðir mín út skáldsögu sem hafði að titli ímyndað götuheiti, sem sé „Snorrabraut 7“, og var það fáum mánuðum áður en nafnanefndin lagði fram tillögu sína um nafnið „Snorrabraut", 20. febrúar 1948. Með móður minni og Nordal var góður kunningsskapur, og taldi hún sig jafnan hafa átt upptökin að þessari hugmynd, hvað sem hún hafði fyrir sér í því. En þá vaknar sú spurning, hvaða Snorri það er sem er genginn aft ur í austurbænum. Vel má vera að fyrir því séu rækilegar og skjalfestar heimildir að það sé enginn annar en Sturlu- sonur, en meðan þær hafa ekki verið birtar er kannske leyfilegt að spá öðru vísi í samhengið. Einn þátturinn í því var vitanlega Snorrahátíðin sem haldin var í Reykholti 1947, en til hennar var ekki vitnað í bréfí nafnanefndar, enda hafði Sigurði Nordal, helsta sérfræðingi Islendinga í verkum rithöfundarins, verið sýndur svo lítill sómi við það tækifæri að hann tók þar ekki einu sinni til máls. Þess í stað er nafngiftin réttlætt með því að „til beggja handa (séu) hverfi með fornmannanöfnum“ (bls. 174). Þau nöfnerhægtað skoðaákort- inu bls. 179 (skaði að í því skuli vera tvær meinlegar villur), og þá koma aðrir þættir samhengisins í ljós. Því hvaða Snorri er það sem er í slagtogi við helstu persónur Laxdæla sögu og Njáls sögu? Gæti það ekki alveg eins verið hinn viðsjálverði Þorgrímur Þorgrímsson, alias Snorri goði? Mér fannst oft að móður minni væri Laxdæla tamari en rit Reykholtsbónda. Ef einhver fótur er nú fyrir þessu, er naumast hægt að gefa nafngiftinni það táknræna gildi sem höfundur gerir, en hins vegar má nú lesa söguþráð Njálu enn skýrar út TMM 1999:1 www.mm.is 143
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.