Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Side 2
Leiðbeiningar til greinarhöfunda
Reglur ritnefndar
Tímarit um menntarannsóknir er vettvangur fyrir fræðilega umræðu um menntarannsóknir á Íslandi. Þær kröfur eru 1.
gerðar til greinahöfunda að þeir lúti viðteknum venjum um fræðilega framsetningu efnis og visindaleg vinnubrbrögð.
Öllum er heimilt að senda efni ritið. Allt efni sem tengist menntun og rannsóknum á menntamálum með einum eða 2.
öðrum hætti metur ritnefnd og skoðar með tilliti til útgáfu.
Meginregla er að innsendar greinar hafi ekki birst annars staðar. Undantekning er gerð frá þessari reglu ef ritnefnd telur 3.
greinar sem birst hafa í viðurkenndum erlendum fagtímaritum eftirsóknarverðar til birting-ar á íslensku.
Fyrsti höfundur greinar er talinn aðalhöfundur hennar og ber ábyrgð á samskiptum við ritstjóra og væntanlega les-4.
endur.
Greinar geta verið hvort sem er á íslensku eða ensku. Ef grein er á íslensku er áhersla lögð á að öll fræðiheiti séu á 5.
íslensku og að málfar og framsetning efnis sé samkvæmt íslenskum málvenjum.
Ákvörðun um birtingu greina byggist á faglegri umsögn a.m.k. tveggja ritrýna um gæði rannsóknar eða fræðilegrar 6.
greinar og viðbrögðum höfundar við athugasemdum. Allt innsent efni fær faglega umsögn og athugasemdir að minnsta
kosti tveggja aðila sem ritnefnd treystir til verksins.
Umsögn fylgir jafnframt ákvörðun um birtingu eða synjun. Í vissum tilvikum getur grein verið samþykkt með fyrirvara 7.
um að brugðist sé við faglegum ábendingum. Eftir að greinarhöfundur hefur brugðist við athugasemdum er grein hans
lesin yfir að nýju og honum sendar nýjar abendingar, fyrri ábendingar ítrek-aðar eða hann látinn vita að grein hans sé
endanlega samþykkt með áorðnum breytingum.
Greinum sem ekki standast kröfur um framsetningu og efnistök hafnar ritnefnd hvort sem um er að ræða innsendar 8.
greinar eða greinar sem fólki hefur verið boðið að skrifa í blaðið.
Ritnefnd áskilur sár rétt til að breyta orðalagi eða stafsetningu ef nauðsyn krefur við lokafrágang ritsins. 9.
Skilafrestur efnis í timaritið er 1. maí ár hvert. Handrit sendist ritstjóra (sjá http://www.fum.is). 10.
Framsetning efnis
Handritum skal skila í rafrænu formi til ritstjóra. Þau skulu vera unnin í Word með leturgerð Times New Roman 12 1.
punkta. Línubil skal vera 2 og jafnað til vinstri. Fyrirsagnir skulu vera í Times New Roman 14 punkta og aðeins jafnaðar
til vinstri. Lengd handrits skal vera að hámarki 9000 orð (um 25 bls.). Að öðru leiti skal fylgja útgáfureglum APA1.
Nauðsynlegt er að höfundar gefi til kynna í handriti hvar þeir vilja að töflur og myndir séu staðsettar í texta. Sérstök 2.
athygli er vakin á því að vitna skal til skírnar- og föðurnafns íslensks höfundar en ekki föðurnafns eingöngu eins og gildir
um erlenda höfunda. Jafnframt skal raða íslenskum höfundum í heimildaskrá samkvæmt skírnarnafni þeirra.
Í greinum á íslensku er ætlast til þess að beinar tilvitnanir úr erlendum tungumálum séu þýddar á íslensku.3.
Höfundum er bent á að geta þess í neðanmálsgrein ef greinin er byggð á prófritgerð höfundar eða ef vinnan við verk-4.
efnið hefur hlotið styrki.
Myndum skal skilað í sér skjali í upprunalegu formati (t.d. exel í svart/hvítu). Sá texti sem höfundur vill að standi við 5.
mynd, ásamt númeri myndar, fylgi myndinni í öðru skjali.
Stafabil í texta skulu að jafnaði ekki vera fleiri en eitt. Þegar þau þurfa að vera fleiri (t.d. við töflugerð) skal nota dálka-6.
lykil á lyklaborði.
Greinum á íslensku skal fylgja ágrip sem er um 300 orð að lengd. Þeim skal og fylgja ágrip á ensku (abstract) sem 7.
er um 600 orð að lengd. Því má skipta í undirkafla. Greinum á ensku skal fylgja ágrip á ensku sem er um 300 orð að
lengd og ágrip á íslensku sem er um 600 orð að lengd.
Öllum greinum skal fylgja um 60 orða texti undir fyrirsögninni „Hagnýtt gildi“. Þar skulu höfundar tilgreina á hvern hátt 8.
greinin gæti nýst í stefnumótun eða starfi á vettvangi menntamála.
Öllum greinum skal fylgja texti um höfundana á íslensku og ensku (60-70 orð á hvoru máli). Þar skal tilgreina menntun 9.
höfunda og núverandi starf. Einnig um rannsóknarsvið þeirra og netfang.
Heiti greinar skal fylgja á ensku. Nöfnum höfunda skal fylgja heiti þeirrar stofnunar sem þeir starfa hjá á íslensku og 10.
ensku.
Tímarit um menntarannsóknir 6. árgangur 2009.
Ritstjóri: Gretar L. Marinósson (gretarlm@hi.is).
Aðrir í ritstjórn: Kristín Aðalsteinsdóttir, Háskólanum á Akureyri; Kristján Kristjánsson,
Háskóla Íslands; Sif Einarsdóttir, Háskóla Íslands og Þórdís Þórðardóttir, Háskóla
Íslands.
Prófarkalestur og málfarsyfirlestur á íslensku: Helga Jónsdóttir.
Prófarkalestur og málfarsyfirlestur á ensku: Terry G. Lacy.
Heimildayfirlestur m.t.t. APA: Félagsvísindastofnun.
Umbrot og hönnun kápu: Kristín Jóna Þorsteinsdóttir (afro@centrum.is).
Prentun: Prenttækni.
Efni þessa tímarits má ekki afrita með neinum hætti, svo sem ljósmyndun, ljósritun,
prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild, án skriflegs
leyfis höfunda og útgefanda.
© Félag um menntarannsóknir og höfundar efnis.
ISSN 1670-5548
Tímarit um menntarannsóknir er gefið út af Félagi um menntarannsóknir, Háskóla
Íslands, Menntavísindasviði v/Stakkahlíð, 105 Reykjavík. Tímaritið kemur út einu sinni
á ári. Áskrift er hægt að panta á vefsíðu félagsins, http//www.fum.is. Tilkynningum
áskrifenda um breytt heimilisföng er hægt að koma áleiðis á sama hátt.
Þeir sem hug hafa á því að fá ritrýni á bækur sínar birtar í ritinu geta sent
ritstjóra eintak.
Lokadagur vegna skila á efni í næsta tölublað er 1. maí 2010.
1 Miðað er við reglur APA í framsetningu efnis, tilvitnana, tilvísana og heimildaskrár. Þær má finna t.d. í Publication
Manual of the American Psychological Association, (5th ed. 2001); Handbók Sálfræðiritsins sem Sálfræðingafélag Íslands
gefur út, Gagnfræðakveri handa háskólanemum sem Háskólaútgáfan gefur út og fleiri ritum.