Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 38

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 38
takti í framvindunni, auk þess sem smelluhljóð var gefið við réttum svörum. Vikið var frá reglu beinna fyrirmæla við þjálfun í aðgreiningu, þar sem lík atriði voru kynnt samhliða (Markle, 1990) og greindi Ása milli dæma og dæmaleysa við frumkennslu og færniþjálfun, áður en hún heimfærði nýja kunnáttu og færni við samsett og framandi verkefni. Meginhluta allra tíma var varið til hröð- unarnámsins og áherslan í kennsluferlinu var á tímamældar endurtekningar hljóðrænna lykilatriða, eins og að umskrá milli bókstafa og málhljóða, sem Ása átti sérstaklega í erfið- leikum með og sagðist í upphafi kennslunnar ekki muna, jafnvel ekki frá einu augnabliki til annars. Ásu var strax kennt að draga yrt málhljóð (öll sérhljóð og þau samhljóð sem hægt er) í tvær sekúndur, og þess krafist í öllum munnlegum æfingum (heyra og segja, sjá og segja, hugsa og segja). Seinna í kennsluferlinu, eins og við aðgreiningu á orðum með einföldum og tvöföldum samhljóða, var byggt á þessu verklagi. Þegar Ása byrjaði að kveða að tveimur bókstöfum var henni einnig kennt strax að bera hljóðin ekki fram stök og með augnabliks hléi á milli, t.d. lll – aaa, heldur að kveða að þeim með því að renna sér strax af einu hljóði og yfir á annað, lllaaa, eins og í talmáli (Guðríður Adda Ragnarsdóttir, 2007; Ísak Jónsson, 1958; Maloney, o.fl., 2001). Framvinda kennslunnar var sambærileg þeirri sem kynnt var í lýsingu á DI-PT kennslu og þjálfun nemanda með einhverfu (sjá Guðríður Adda Ragnarsdóttir, 2007). niðurstöður Gögnin sýna óheft afköst (e. free operant) nemandans (Ferster og Skinner, 1957; Lindsley, 1992) innan tiltekinna tímamarka sem oftast er ein mínúta í senn. Á 1. mynd sést leshraði Ásu. Áður en kennslan hófst las hún 37 rétt atkvæði á mínútu í 2. texta. Þá óskaði hún eftir að lesa textann aftur með lituðum gleraugum. Það gerði hún, las 40 atkvæði rétt og bætti sig um þrjú atkvæði (ekki sýnt á 1. mynd). Í bæði skiptin las Ása óskýrt og sundurslitið. Erfitt reyndist að skilja það sem hún sagði og rétt lesin atkvæði voru á víð og dreif um textann. Eftir 30 tíma kennslu og þjálfun með margvíslegum hljóðrænum tækniæfingum (sjá Guðríði Öddu Ragnarsdóttur, 2007, töflur bls. 76–78) mældist hraði á lestri 2. texta, sem er viðmiðunartextinn, 104 rétt lesin atkvæði á mínútu. Ása hafði bætt við sig 67 rétt lesnum atkvæðum á mínútu og höfðu afköstin aukist 2,8 falt (eða 180%; 104:37 rétt lesnum atkvæðum á mínútu). Ný leikni yfirfærðist einnig á efni sem hún hafði ekki séð áður og náði hún 75 rétt lesnum atkvæðum á mínútu í 1. texta, sem er rúmlega tvöfaldur hraði hennar (103%; 75:37) á fyrsta lestri 2. texta. Lestur beggja texta var auk þess nær villulaus, eða þrjár og tvær villur í hvorum texta. Þegar lestur Ásu var prófaður aftur 30 kennslustundum síðar (eftir 60 stundir alls) las hún 132 atkvæði rétt í 2. texta. Hún hafði bætt við sig 95 rétt lesnum atkvæðum frá fyrstu mælingu og höfðu afköstin aukist 3,6 falt (260%; 132:37). Lesleiknin skilaði sér einnig vel í lestri 1. texta sem hún las hér um bil eins hratt. Þar náði hún 127 réttum atkvæðum og höfðu afköstin aukist 1,7 falt (70%; 127:75) frá undangenginni mælingu á lestri 1. texta. Ef leshraði 1. texta er borinn saman við upphaflegan hraða á 2. texta (127:37) er afkastaaukningin í lestrinum 3,4 föld (240%). Villutíðni var áfram lág, eða fjórar villur í lestri hvors texta um sig. Í maí 2007, sjö mánuðum eftir að kennslu lauk, var Ása prófuð í lestri fjögurra texta og hraðflettispilaæfingum. Hún hafði lesið 2. texta fjórum sinnum áður (þar af einu sinni með lituðum gleraugum), 1. texta hafði hún lesið tvisvar, en 3. og 4. texta, sem voru heldur þyngri en 1. og 2. texti, hafði hún aldrei séð fyrr. Lestur á 2. texta mældist 150 atkvæði alls, þar af 146 rétt og fjögur röng. Hún hafði þá bætt 14 rétt lesnum atkvæðum við frá síðustu mælingu. Ef hraðinn er borinn saman við fjölda rétt lesinna atkvæða frá fyrsta lestri er afkastaaukning á 2. texta nær fjórföld eða 3,96 föld (296%; 147:37). Lestur á 1. texta mældist einnig 150 atkvæði alls, þar af 147 rétt lesin atkvæði og 3 röng. Lestrarhraðinn frá síðustu mælingu hafði aukist um 20 rétt lesin atkvæði. 36 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 Guðríður Adda Ragnarsdóttir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.