Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 44

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 44
42 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 breytingar á aðstæðum Ásu á kennslutíma- bilinu í þá veru að hafa áhrif á lesfærni hennar. Eftir fyrstu 30 stundirnar, sem voru með hljóðrænum æfingum einvörðungu, las hún í samfellu 104 rétt atkvæði á mínútu í viðmiðunartexta. Eftir það fór hún að lesa ótilkvödd utan kennslunnar sér til ánægju uppi í rúmi á kvöldin, og stóð jafnvel og las upphátt með viðeigandi tjáningu fyrir bekkinn sinn í skólanum. Ekki eru til mælingar á lesfærni Ásu við upphaf annarrar og þriðju kennslulotu, en höfundur telur óhætt að ætla að þessi margföldun á lestíðni, þótt hægt væri lesið, hafi einnig verið áhrifaríkur þáttur í þeim framförum sem mældust við lok kennslunnar og eftir hana. Þegar kennarinn/höfundur hitti Ásu fyrst og sagðist geta kennt henni að lesa svaraði hún með nokkrum þjósti: „Ég er lesblind og ég verð það alla ævi.“ Í lok kennslunnar var hún svo spurð hvað hún ætlaði að verða, og svaraði hún þá „leikkona “, með bros á vör. Eins og fram hefur komið hafði Ása fengið lituð gleraugu í því skyni að auðvelda henni lestur, og bað hún um að fá að lesa með þeim þegar lestur hennar var prófaður í aðdraganda kennslunnar. Hún las sama textann (2. texta) aftur og jukust afköstin um þrjú rétt lesin atkvæði á mínútu. Annað við lesturinn breyttist ekki. Tæplega verður talið að afkastaaukning um þrjú atkvæði sé meiri en ætla mætti að yrði hvort eð væri við að lesa sama textann strax aftur. En ef það er reynsla leshamlaðra og kennara þeirra að litaður pappír, gleraugu og glærur auki lestrarfærnina er brýnt að skoða ítarlega áhrif þessara meintu hjálpartækja, ekki aðeins með viðtölum og könnunum heldur með kerfisbundnum raunprófunum. Til þess að hægt sé að kenna meira á skemmri tíma en áður þarf m.a. að fínstilla kennsluferlið þannig að lestur nemandans sé alltaf nær villulaus, en það felur í sér að hann nái jafngóðu valdi á og kunni til hlítar öll atriðin sem lögð eru fyrir í tímunum. Í lestri er þeirri nákvæmni náð með því að frumkenna með beinum fyrirmælum áður en nemandinn spreytir sig á hraðaæfingunum. Jafnvel þótt aðeins sé unnið innan afmarkaðs þreps í námsefninu yrði villufjöldi mikill án undanfarandi frumkennslu. Dæmi um það sjást vel í víxluninni á 2. og 4. mynd þar sem frumkennt var eftir fyrstu umferð í því þrepi. Nemendur sem átt hafa í miklum og langvar- andi erfiðleikum með lestur hafa litla ánægju af slíkri glímu og missa móðinn við það eitt að sjá allar villurnar einn ganginn enn. Þar af leiðandi fellst höfundur ekki á leið Lindsleys (1972), að byrja kennslu nemenda sem mikið eiga eftir ólært beint með hnitmiðaðri færniþjálfun, án undanfarandi frumkennslu með beinum fyrirmælum, þótt kennarinn líti á villurnar sem tækifæri til náms og kennslu. Hér á landi hefur á undanförnum árum verið töluverð umræða um svonefndar lestrarleiðréttingar. Því vaknar sú spurning hvort engum finnist athugavert að leiðrétta þurfi lestur hjá stórum hópi íslenskra barna, þrátt fyrir margra ára lestrarkennslu og sérkennslu sem þau fá í skólum sínum? Vitað er að það getur ráðið úrslitum um árangur kennslu og þjálfunar að hún hefjist strax á ungaaldri barnsins (Jacobson, Mulick og Green, 1998). Þegar grunur vaknar um að barn eigi í erfiðleikum með að læra að lesa og þegar það sýnir þekkt einkenni leshömlunar þarf að bregðast strax við (Gabrieli, 2009). Það er ekki sama hver viðbrögðin eru. Þau þurfa að felast í lestrarkennslu sem staðfest hefur verið með gagnreyndum hætti (e. evidence based practices) að skili skjótum og varanlegum árangri. Hin samsetta DI-PT kennslutækni er dæmi um slíka aðferð. Þótt hér sé fjallað um sérkennslu og lestrarleiðréttingu er þessi kennslutækni einnig og ekki síður skilvirk í almennri byrjendakennslu (sjá t.d. http://www. headsprout.com; Maloney, 1998). Sé henni beitt til að kenna börnum að lesa má koma í veg fyrir mögulegan lestrarvanda af hljóðrænum toga (Engelmann, Hanner, Johnson, 1989; Hempenstall, 1999; Gabrieli, 2009) sem aftur dregur úr þörf fyrir sérkennslu og lestrarleiðréttingu. Áhugavert væri að reikna út beinan fjárhagslegan sparnað sem við það yrði, svo ekki sé minnst á lífshamingju nemendanna. Guðríður Adda Ragnarsdóttir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.