Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 45

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 45
43 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 Það er brýnt að undirstrika og ítreka (Guðríður Adda Ragnarsdóttir, 2007) að þeir sem bjóða lestrarkennslu og önnur leiðréttingarkerfi geti sýnt með raunvísum (e. empirical) aðferðum að þau séu jafn árangursrík og af er látið. Tækniframfarir og aukin nákvæmni stað- bundinna mælinga varpa ljósi á sambönd og reglufestu sem okkur voru áður hulin (Kuhn, 1970). Þetta gildir einnig um kennslu, eins og hjálögð hröðunarkort með staðbundnum mælingum sýna, og í taugalífeðlisfræði, þar sem nú er mögulegt að mæla með stafrænni segulheilaritun (e. magnetoencephalography; MEG) formgerð heilasvæða í millimetrum og virkni taugafrumna sem tíðni segulslaga á millisekúndu (sjá nánar Aldísi Unni Guðmundsdóttur og Jörgen Pind, 2003; Gabrieli, 2009; Rósu Eggertsdóttur og Þóru Björk Jónsdóttur, 2006). Þar að auki sýnir starfræn segulómun (fRMI) að samband er milli hljóðrænnar kennslutækni og breytinga á formgerð og virkni heilasvæða sem tengd eru lestri. Baklæg kerfi í vinstra heilahveli eru ekki virk við lestur barna og fullorðinna með dyslexíu. Stíf, hljóðræn þjálfun í heilt ár eykur virkni á lessvæðum vinstra heilahvels í framheila og á gagnaugablaði og sýnir marktæka og varanlega aukningu í lesfimi (Shaywitz o.fl., 2003). Vellutino, o.fl. (2004) álykta að margir sem greinast leshamlaðir hafi beðið skaða af lestrarkennslu sem ekki fullnægði þörfum þeirra. Ástæða þess að nemendur geta ekki lesið orð og setningar er sú að þeir greina ekki málhljóðin og geta ekki umskráð milli málhljóða og bókstafa (Gabrieli, 2009; sjá einnig Guðríði Öddu Ragnarsdóttur, 2004, 2007; Johnson og Layng, 1992, 1996 um component/composites; Lundberg, 1994). Eðli lestrarkennslunnar skiptir sköpum fyrir árangur barna með leshömlun. Markviss, þétt og rækileg hljóðræn þjálfun hefur áhrif á stærð og fjölda þeirra svæða í heila sem virkjast við lestur (Shaywitz o.fl., 2003), og eykur virkni heilabarkar á áður vanvirkum svæðum, ekki aðeins hjá börnum, heldur einnig hjá fullorðnum (Eden o.fl., 2004). Í ljósi þessa er brýnt að lestrarkennarar hér á landi öðlist gagngera fræðilega þekkingu á DI-PT kennslutækninni ásamt rækilegri og stefnumiðaðri þjálfun í að beita henni. Það beinir athyglinni að þeim sem bera ábyrgð á kennaranámi og símenntun kennara á Íslandi. Ekki er annað að sjá en að sömu hljóðrænu stýribreyturnar og þær sem auka lestrarfærni hratt og mikið stýri einnig breytingum á gerð og virkni lestrarsvæða heilans. Í stað þess að dvelja áfram við flokkun og sjúkdómsgreiningar á börnum með leshömlun, bíður okkar næsta skref − hið hrífandi viðfangsefni að þróa áfram fínstillta kennslutækni sem leiðir til hámarksárangurs á sem skemmstum tíma. Árangurinn getum við mælt í fjölfaglegri samvinnu með aðferðum taugalífeðlisfræði, hröðunarnáms og atferlisgreiningar. Í kennslu og rannsóknum á lestri stöndum við á þröskuldi nýrra tíma. Abstract Teaching a student with severe dyslexia to read by the combined technique of Direct Instruction and Precision Teaching A growing body of evidence supports the need for directly teaching phonics skills to children who have significant reading problems (Carnine, Silbert, Kame‘enui, & Tarver, 2004). Teaching phonics skills can imply at least two different approaches that are not necessarily comparable, although both have been labeled as phonics. The analytic procedure works top-down from whole sentences and words, concentrating on analyzing their constituent parts and ending with the smallest unit –the sound or the phoneme. The synthetic procedure comprises working bottom-up from the phoneme to bigger composites as syllables, words and sentences. An eleven year old girl with severe dyslexia was taught to read through multiple learning channels, by implementing the synthetic phonological technique of Direct Instruction and Precision Teaching. At the onset of the program the girl could hardly decode, had poor phonemic awareness, and pronunciation and Nemanda með dyslexíu kennt að lesa með beinum fyrirmælum og hnitmiðaðri færniþjálfun
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.