Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Síða 79
77
Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009
nógu mikið með þeim. Þá kúventist þessi
hugsun hjá mér ... þetta eru allt snillingar
í grunnskólanum og það er hvergi betra að
vinna, hugsaði ég. Maður kemur inn með
þessu hugarfari og hvað gerist? – það er
hvergi betra að vinna.
Þarna kemur mjög skýrt fram að afstaða
hennar til starfsins mótar hlutverkavitund
hennar samkvæmt skilgreiningu Bouij (1998;
2004). Hún bendir á að hennar eigið viðhorf
til grunnskólans, nemenda og starfsins ráði
miklu um það viðmót sem hún mætir í starfi
og skapi vinnuskilyrði sem hún er ánægð með.
Sumir töluðu um áhyggjur sínar af framtíð
tónmenntakennslu í grunnskólum. Stundum
tengdist það því að erfitt hefur reynst að
fá tónmenntakennara til starfa en einnig því
að þar sem fáir útskrifast eða gefa kost á
sér til kennslu í grunnskólanum setji það
skólastjórnendur og skóla í erfiða aðstöðu.
Hlutverkavitund − fagvitund
Þegar viðmælendur skilgreindu sjálfa sig út
frá starfinu og menntun sinni fengust gjörólík
svör. Björn, sem framan af tónlistarnámi sínu
stefndi á að verða einleikari, hafði mjög skýra
sýn á starfsheiti sitt og greinir ekki á milli þess
að vera tónlistarflytjandi eða kennari. Hann
sagði: „Ég er tónlistarmaður. Það að kenna eða
vera starfandi tónlistarflytjandi eru einungis
mismunandi leiðir að sama markmiði, sem er
að hafa áhrif á samferðamenn sína í gegnum
tónlist og njóta hennar.“ Hrafnhildur hefur
hins vegar alveg gagnstæða sýn á þessi tvö
hlutverk og lítur á sig sem kennara en ekki
tónlistarmann. Hennar sýn er þessi: „Ég er
ekki tónlistarmaður. Mín sterka hlið er fyrst og
fremst þessi mannrækt. Ég kann tónlist ... ég er
fyrst og fremst kennari, með ofboðslega trú á
tónlist, listformið, tjáninguna og sköpun.“
Kannski eru þessi sjónarmið ekki eins ólík
og þau virðast í fyrstu. Markmið beggja kenn-
ara er að hafa áhrif með tónlist þó að
þeir skilgreini sig á ólíkan hátt. Það sem
er sameiginlegt með viðmælendum, þó að
skilgreiningar séu stundum ólíkar, er að þeir
3. mynd. Hlutverkavitund Björns
Hlutverkavitund og starfsumhverfi farsælla tónmenntakennara
Dæmi um ummæli vi mælanda
Ví tæk tónlistar ekking
Hlutverkavitund sem
tónlistarma ur
Sértæk tónlistar ekking
Hlutverkavitund
sem kennari
Alhli a
tónlistama ur
Fag-/inntaksmi a ur
kennari
Tónlistarflytjandi
Nemendami a ur
kennari
Dæmi u u mæli viðmæle da
liða
tónlistarmaður
Nemendamiðaður
ke nari
Fag/in t ksmiðaður
kennari
Hlutverkavitund
sem ke ri
Hlutverkavitun em
tónlistarmað r
Tónlistarflytja i
Sértæ tónlistarþekking
Víðtæk tónlistarþekking
Sérhæfing í skapandi tónlistarmiðlun
Ég er með blásarakennarapróf og er fyrrum óbóleikari.
Ég stjórna eigin kór og syng í öðrum.
Ég er í hljómsveit sem átti lag í
Júróisjón og er að semja tónlist
fyrir dansverk.
Að krakkarnir séu virkir. Mig langar svo
að skila virkum hlustendum.
Mér finnst það undarlegt að ætlast
til þess að men séu jafnhæfir til að
kenna allt.
Vá, ég er tónlistarmaður.