Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Síða 88
86
Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009
Námsgreinin náttúrufræði (einnig nefnd
„náttúruvísindi“ hér og á einum stað með
heimildatilvísun „raungreinar“) er mun yfir-
gripsmeiri en margir gera sér grein fyrir.
Það kemur glöggt fram í inngangi hinnar
opinberu námskrár í náttúrufræði sem var í
gildi þegar rannsóknin var gerð og verður
fram til ársins 2010: „Það [fræðasvið náttúru-
vísinda] spannar undur náttúrunnar í ótal
myndum; eðli og öfl, himingeim, jörð og
líf“. (Menntamálaráðuneytið, 1999a, bls.12).
Náttúrufræði fjallar því jafnt um hina dauðu
sem hina lifandi náttúru. Þrír meginflokkar
markmiða námskrárinnar taka bæði til
inntaksmarkmiða og aðferðamarkmiða. Þessir
flokkar eru eftirfarandi:
Hlutverk og eðli náttúruvísinda1.
Efnisþættir:2.
Eðlisvísindi•
Jarðvísindi•
Lífvísindi•
Vinnubrögð og færni3.
Allir flokkarnir fela í raun í sér tilmæli um
að nota UST í náttúrufræðinámi (Mennta-
málaráðuneytið, 1999a, bls. 9 og 12) og mark-
mið síðastnefnda flokksins gera í raun ráð
fyrir því (sjá nánar áfanga- og þrepamarkmið
undir Vinnubrögð og færni í námskránni).
Áhersla er lögð á að nemendur skilji
hvernig vísindin hafi áhrif á hugsun og
lifnaðarhætti nútímamannsins og móti þróun
samfélagsins. Einnig er lögð áhersla á að
nemendur kynnist ferlinu í vísindalegum
vinnubrögðum, þar sem þeir skilgreini við-
fangsefni, skipuleggi, skrái og vinni úr
gögnum, túlki, meti, setji fram og miðli. „Með
hjálp tækninnar og ýmissa forrita opnast nýir
möguleikar til verklegra æfinga og í mark-
miðum aðalnámskrár í náttúrufræðum er gert
ráð fyrir að þeir möguleikar séu vel nýttir
frá upphafi skólagöngunnar.“ (Mennta-
málaráðuneytið, 1999a, bls. 12). Auk þess er
lögð rík áhersla á nýtingu UST við mælingar,
skráningu niðurstaðna úr þeim og útreikninga líkt
og í menntakerfum nágrannalanda (sjá til dæmis
National Research Council, 1996, bls. 175).
Allir markmiðaflokkarnir í náttúrufræðihluta
aðalnámskrárinnar eiga að fléttast saman í
eina heild sem myndar eðlilega stígandi í
námi hvers og eins (1. mynd). Markmið með
úrvali efnisþátta úr þremur meginfræðasviðum
náttúruvísinda, þ.e. úr eðlisvísindum, jarð-
vísindum og lífvísindum, eru sameiginleg
hvað varðar vinnubrögð og færni nemenda og
Meyvant Þórólfsson, Allyson Macdonald og Eggert Lárusson
1. mynd. Markmiðaflokkarnir í náttúrufræði tvinnast saman í eina heild. Aðal-
námskrá grunnskóla. Náttúrufræði. (1999, bls. 8)