Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Síða 90

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Síða 90
88 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 heldur þyrfti góðan stuðning innan hvers skóla, svigrúm fyrir innra skipulag og aðgengi að búnaði (Bennett, 2003). Sá vél- og hugbúnaður sem gagnast náttúruvísindanámi best þyrfti að vera aðgengilegur þar sem námið færi fram, ekki í sérbúinni tölvustofu. Samkvæmt Bennett sýna rannsóknir einnig að UST virðist bjóða upp á nýbreytni sem styðji við áhugahvöt og efli skilning nemenda á vísindalegum hugmyndum og hugtökum og að notkun UST við öflun gagna, mælingar og skráningu data-logging) og líkanagerð geti skipt sköpum því að hún spari tíma við meðferð gagnanna og gefi þannig meira svigrúm fyrir umræðu og túlkun á því sem í gögnunum felst, en það sé einmitt einn mikilvægasti þátturinn í námsferlinu 2003). Baggott La Velle og félagar 2003) standa fyrir athyglisverðri langtímarannsókn í ljósi markmiða um vinnubrögð og færni í bresku þjóðarnámskránni í náttúruvísindum. Um er að ræða nokkrar tilviksrannsóknir þar sem rannsakendur vinna í náinni samvinnu við kennarana sjálfa og kennaramenntunaraðila. Í fyrstu tilviksrannsókninni var beitt margprófun við rannsókn á þætti UST í námi og kennslu þar sem 11–12 ára nemendur lærðu um straumrásir, m.a. með noktun hermilíkans. Í ljós kom að starfskenning kennara og kennsluhættir vógu þungt þegar litið var á hlutverk nemenda í námsferlinu og þar með námsárangur. Nokkrar rannsóknir hafa beinst að sérstöðu námsgreina og notkun UST í því tilliti. Henn- essy, Ruthven og Brindley 2005) rannsökuðu til dæmis hvernig framhaldsskólakennarar notuðu UST í ensku, stærðfræði og nátt- úruvísindum. Þar kom fram í viðtölum við fagkennara sterk tilhneiging til að halda í ýmsar hefðir og sérstöðu námsgreinanna og þar af leiðandi mátti greina viðnám gegn breytingum sem nýting UST hefði hugsanlega í för með sér. Jafnframt kom fram að hefðbundnar námskrár og próf virkuðu sem hindrun gegn breytingum. En þrátt fyrir þetta sáu þátttakendur í rannsókninni ástæðu til að fylgja hinni öru tækniþróun þekkingarsamfélagsins og rannsakendur töldu sig sjá hægfara þróun í skipulagi náms og kennslu í krafti áhrifa frá UST. Peter John (2005) rannsakaði einnig notkun UST meðal fagkennara í stærðfræði, náttúruvísindum, tónmennt, erlendum málum og landafræði. Hann komst að svipaðri niðurstöðu, þ.e. að fagkennarar voru tilbúnir að flétta UST saman við kennslu sína svo framarlega sem tölvutæknin leiddi ekki af sér byltingu á þeim grundvallarstoðum sem viðkomandi faggrein var byggð á. Í greininni notar John athyglisverðar samlíkingar til að undirstrika varkárni kennara gagnvart hinni nýju tækni. UST er til dæmis líkt við „Trójuhest“ og vitnað er í fræg orð Marshalls McLuhan: „The medium is the message“ (John, 2005, bls. 480) sem vísuðu til þess að form og notkunarmöguleikar miðilsins (UST) stýrðu miklu um allt inntak og skipulag þar sem hann væri notaður. Í rannsókn Johns kom m.a. fram það athyglisverða sjónarmið meðal náttúrufræðikennara að nemendur hefðu tilhneigingu til að líta á stafræn hermilíkön eins og hverja aðra tölvuleiki og því væri ekki tryggt að þau næðu þeim tilgangi sem þeim væri ætlaður. Á Íslandi hafa verið gerðar nokkrar rann- sóknir á notkun UST í námi og kennslu. Þar hafa eflaust haft áhrif áhersla á UST í aðalnámskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla 1999 og fjölbreytileg námstilboð á öllum skólastigum, ekki síst háskólastigi. Má þar nefna tilkomu tölvu- og upplýsingatækni- brautar á framhaldsstigi við Kennaraháskóla Íslands árið 1998, námsframboð við Háskólann í Reykjavík sem tengist tölvunotkun og kennslufræði, og fyrir fimm árum varð upplýsingatækni að sérstöku kjörsviði í grunnnámi Menntavísindasviðs Háskóla Íslands (áður Kennaraháskóla Íslands). Í júní 2008 var stofnuð rannsóknarstofa á þessu sviði, RANNUM, sem leggur áherslu á rannsóknir á sviði upplýsingatækni og miðlunar (sjá http://wp.khi.is/rannum). Að minnsta kosti 30 meistararitgerðir á sviði upplýsingatækni- og tölvunotkunar í skólastarfi hafa birst hér á landi síðastliðin tíu ár (Allyson Macdonald, 2008). Unnið var að rannsóknarverkefninu NámUST (http://namust.khi.is) árin 2002– Meyvant Þórólfsson, Allyson Macdonald og Eggert Lárusson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.