Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 95

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 95
93 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 Tilgangur UST. Er UST nýtt sem • stuðningur, viðbót eða umbreyting, sbr. CPF-líkan Twinings. Nám sem felur í sér verklag, • vinnubrögð og færni við öflun þekkingar, sbr. hugmyndir Baggott La Velle og félaga. Að hvaða marki tíðkast slík vinnubrögð, með UST eða án? Í hvaða hlutverki eru nemendur • þar sem UST kemur við sögu? Eru þeir móttakendur upplýsinga og gagna, rannsakendur, skaparar eða endurskoðendur? niðurstöður Í niðurstöðum eru framangreindir fjórir þættir skýrðir hjá hverjum þátttakanda í fjórum undirköflum. Notuð eru sömu dulnefni og í fyrri grein (Meyvant Þórólfsson, Allyson Macdonald og Eggert Lárusson, 2007) þegar vísað er til ummæla og athafna viðmælenda. Þau eru Saga, Aðalsteinn, Ólína, Jakob og Símon. Vægi UST í námi og kennslu í náttúru- vísindum Hér er reynt að draga upp mynd af vægi UST í námi og kennslu náttúruvísinda hjá þátt- takendunum fimm eins hún birtist þegar rannsóknin var gerð. Ekki var gerð megindleg úttekt á því en reynt að meta út frá samtölum og skoðun aðstæðna hversu veigamikinn sess UST skipaði í námi og kennslu hjá hverjum og einum. Hjá Sögu hafði UST tiltölulega lítið vægi. Hún hafði að vísu stöðugan aðgang að nettengdri tölvu og skjávarpa í kennslustofu sinni en virtist nota þann búnað tiltölulega lítið eða einungis sem stuðning við miðlun efnis. Hún sagðist vilja nota sérbúna tölvustofu meira en raun bæri vitni en stofan væri nánast undantekningarlaust upptekin. Notkun UST virtist hverfandi lítil hjá Aðalsteini. Hann notaði tölvu, reyndar eigin tölvu og sjónvarpsskjá sem stuðning við fyrirlestra upp úr efninu. Að öðru leyti notaði hann ekki UST sem þátt í náttúrufræðikennslu sinni og nemendur hans aldrei. Hann sagðist ekki hafa aðgang að miklum búnaði og tækjum við skólann en hafa fengið vilyrði fyrir kaupum á slíku. Ólína notaði UST talsvert mikið. Skólinn hennar átti fartölvuvagna og hún sagðist oft nota þá, m.a. með frjálsri Netskoðun. Hún notaði einnig tölvu og skjávarpa fyrir glærusýningar sem stuðning þegar hún fór yfir námsefnið. „Ég er núna að fara að fá skjávarpa í loftið ... það á bara eftir að festa hann.“ Jakob virtist sjaldan nota UST beint í náttúrufræðitímum. Hann sagðist hins vegar láta nemendur skrifa ritgerðir, afla gagna á Netinu, gera veggspjöld og undirbúa kynningar, en ekki beint í náttúrufræðitímum. Aðspurður um notkun algengra notendaforrita í tengslum við náttúrufræðinámið sagði hann: „…það er kennt í tölvutímum [PowerPoint] og Word og Excel og allt þetta.“ Sá sem nýtti sér UST mest var án efa Símon. Fjölbreytnin í notkun var einnig meiri hjá honum en t.d. hjá Ólínu sem þó nýtti stafræna tækni töluvert. Símon nýtti sér öll möguleg tæki og tól, hvort sem þau voru stafræn eða ekki, til að skerpa skilning nemenda og haga námi og kennslu í samræmi við þau markmið aðalnámskrár sem má heimfæra á vinnubrögð og færni og hlutverk og eðli náttúruvísinda. Hann varpaði fram ýmsum athygliverðum hugmyndum (sýn) um nýtingu UST, t.d. að stilla upp tölvustýrðu líkani af sólkerfinu sem hreyfði reikistjörnurnar og sýndi afstöðu með svipuðum hætti og raunverulega gerist. Tilgangur með notkun UST Samkvæmt CPF-líkani Twinings má greina þrenns konar tilgang með notkun UST, þ.e. með hliðsjón af því hvort upplýsinga- og samskiptatækni er nýtt sem stuðningur, sem viðbót eða útvíkkun eða til að umbreyta kennsluháttum. Saga nýtti UST nánast eingöngu sem stuðning. Hún sagðist leita að fleiri notkunarmöguleikum en beinni miðlun en Náttúrufræðinám með stuðningi upplýsinga- og samskiptatækni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.