Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Síða 100

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Síða 100
98 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 tölvutæku formi. Og þar sem þau læra sem sagt að setja upp í Word og vinna með töflur og myndefni og allt það. (Úr viðtali 21. október 2005) Samantekt og umræða Í þessari grein er lýst rannsókn á því hvernig fimm náttúrufræðikennarar notuðu upplýsinga- og samskiptatækni (UST) í kennslu sinni. Notkun hinnar stafrænu tækni reyndist margbreytileg meðal þátttakenda, allt fá MSN og tölvupóstsamskiptum yfir í djúpt hugsaða forritun með tækni-legó. Sýn þeirra á gildi UST í námi og kennslu reyndist einnig ólík og reyndar einnig á kennsluhætti almennt. En þrátt fyrir margbreytileika vakti það athygli að mikilvægir notkunarmöguleikar UST í náttúrufræðinámi virtust lítið nýttir meðal kennaranna fimm, t.d. skráning, úrvinnsla og túlkun gagna með hjálp töflureiknis, notkun stafrænna mælitækja, t.d. voga og hitamæla, og hermilíkön. Loks þótti það eftirtektarvert hve aðstæður kennaranna reyndust ólíkar og einnig sá skólabragur sem ríkti í skólunum fimm. Bennett (2003) komst að þeirri niðurstöðu að nýting UST í náttúruvísindanámi væri að mestu háð faglegum ákvörðunum kennara og viðhorfum, þ.e. starfskenningu. Hugtakið starfskenning vísar til þeirra hugmynda sem liggja að baki beinum athöfnum kennara í starfi (Ragnhildur Bjarnadóttir, 1993). Hugmyndir og ákvarðanir í þeim efnum eru bæði faglegar og persónulegar því að þær mótast af þeirri þekkingu og reynslu sem kennarinn öðlast í námi og starfi og þær eru einnig háðar persónulegum einkennum kennara, lífssýn, viðhorfum og gildismati. Svo virðist sem starfskenning hafi ráðið meiru um ákvarðanir kennaranna fimm en sérstaða greinarinnar og sú menning eða hefð sem henni fylgdi (sbr. subject-specific practice). Þau höfðu til að mynda ólíka sýn á stöðu sína og skyldur gagnvart nemendum, allt frá því meginhlutverki að miðla þekkingu og halda nemendum við námsefnið yfir í að „spekúlera í þessu með þeim“ og taka „dítúra“ eins og Símon orðaði það og taka þannig mið af margbreytileika nemenda. Hjá honum, og reyndar Ólínu líka, mátti þó sjá merki um hollustu við námsgreinina og eðli hennar því að þau viðhöfðu kennsluhætti sem einkenndu vinnubrögð og færni í náttúruvísindum en sýndu þó mismikla tilburði til að nýta sér þá fjölmörgu möguleika sem UST hefur að bjóða. Þetta tvennt, breytileg fagleg sýn og meint vannýting á möguleikum UST, bendir óneitanlega til þess að náttúrufræðikennarar þurfi á auknum stuðningi að halda, bæði innan frá og utan. En eins og Bennett (2003) benti á nægja hefðbundin símenntunarnámskeið ekki til. Skapa þarf vettvang fyrir kennara til að mynda samfélag um vinnubrögð og kennsluhætti (sjá einnig OECD/CERI, 2008, 2009), sbr. einmitt það sem bæði Saga og Jakob nefndu í viðtölum. Traustur stuðningur frá nánasta umhverfi er jafnframt mikilvægur, einnig svigrúm fyrir innra skipulag og að- gengi að viðeigandi búnaði þar sem námið færi fram, ekki nægir aðgangur að sérbúinni tölvustofu. Mikilvæg niðurstaða Bennett er á þá leið að greiður aðgangur að UST við öflun, mælingar og skráningu gagna (data-logging) og líkanagerð, t.d. gerð hermilíkana (simulations), geti skipt sköpum því að hann spari tíma við meðferð gagna og gefi meira svigrúm en ella fyrir umræðu og túlkun þess sem meginmáli skipti í námsferlinu. Þetta kemur einnig heim og saman við rannsóknir á námi sem ferli og áherslum á vinnubrögð og aðferðir (sbr. Baggott La Velle o.fl., 2003). Vægi UST í námi og kennslu í náttúru- vísindum Notkun UST fær greinilega mismikið rými og tíma í kennslu hjá náttúrufræðikennurunum fimm. Þrír þeirra, þ.e. Aðalsteinn, Saga og Jakob, virðast ekki leggja mikla áherslu á notkun stafrænnar tækni í námi, a.m.k. ekki í þeim mæli sem aðalnámskrá virðist gera ráð fyrir. Hin tvö nota tæknina allnokkuð, einkum Símon. Ef til vill á þessi varkárni sér svipaðar skýringar og Peter John (2005) setti fram í fyrrnefndri rannsókn. Fagkennarar reyndust Meyvant Þórólfsson, Allyson Macdonald og Eggert Lárusson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.