Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 143
141
Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009
vera sveigjanlegur og falla að aldri og þroska
barnanna. Ekki dugi að setja eina reglu sem
gildi fyrir alla. Það viðhorf að börn þurfi að
lúta ytri reglum til að öðlast innri aga, annars
verði þau stjórnlaus, lýsir ekki að mínu mati
þeirri virðingu sem annars birtist í viðhorfi
leikskólakennaranna til barna. Það væri vert
að skoða nánar hugtakið agi og hvað átt er við
með stjórn og stjórnleysi barna, gæti verið efni
í aðra rannsókn.
Hlýja og virðing, þar sem hagsmunir barn-
anna eru í fyrsta sæti, er það viðhorf sem skín
í gegnum flest það sem leikskólakennararnir
segja. Þær eru nær allar þeirrar skoðunar að
ekki sé hægt að sinna starfinu í leikskólanum
nema láta sér annt um hagsmuni barnanna.
Leikskólakennari þurfi að vera fær um að
tengjast börnunum og setja sig í þeirra spor. Þar
skipti viðhorf og hugsun leikskólakennarans
máli. Vissulega sé hægt að sinna starfinu í
leikskólanum án þess að gefa neitt af sér en
gildi þess er mjög dregið í efa.
Niðurstaða rannsóknarinnar er að leikskóla-
kennarar eru meðvitaðir um mikilvægi um-
hyggju fyrir þroska barnsins og að leggja
þurfi á hana ríka áherslu í leikskólastarfi.
Leikskólakennararnir sem tóku þátt í þessari
rannsókn telja að umhyggja fyrir börnum felist
í því að láta sig bæði andlegar og líkamlegar
þarfir barnanna varða. Niðurstöðurnar staðfesta
fyrri þekkingu og almennt álit á mikilvægi
umhyggju fyrir nám og þroska barna. Það
er athyglisvert að þátttakendur í rannsókninni
telja að ekki eigi að vanmeta mikilvægi blíðra
brosa og hlýrra faðmlaga, slíkt skipti máli fyrir
vellíðan barnanna, og hafi aftur áhrif á þroska og
hæfileika barnsins til að læra – þættir sem ekki
hefur verið gert hátt undir höfði og hafa kannski
verið taldir of sjálfsagðir til að gefa þeim gaum.
Í leikskóla þarf umhyggja og nám að vera
samofið, þannig að barnið læri um leið og um
það er annast en til þess að svo megi verða þarf
leikskólakennarinn að búa yfir faglegri færni.
Abstract
Caring in playschool: Playschool teachers’
definition and perspectives
The main aim of this investigation was to
shed light on the part that care plays in
playschool4 education. Emphasis was placed
on demonstrating how playschool teachers
perceive the term “care” in playschool
education.
Method
Purpose sampling was used to choose the
participants. This is qualitative research, wherein
the material has been gathered by interviewing
eight playschool teachers and carers and
additionally the members of two focus groups
with a total of twelve administrators from
the two playschools involved in the research
project.
The interview was semi-structured, with
certain major questions asked, but allowed the
interviewer to spin off from the respondents’
answers. An interview, with one at a time,
can help the responder to reflect on material
that sometimes is unquestioned, such as
caring (Kvale, 1996/1997). Focus groups rely
on the thoughts and experiences of a group
of individuals, which is why I chose the
management team from the two playschools to
take part in focus group interviews.
The data were categorised as to the themes:
Caring as a perspective and professional
knowledge, caring as presence, caring as
support, caring involves setting limits.
Conclusion
The main conclusion was that the participants
hold care to be the basic factor in all of
playschool work. The playschool teachers
thought that the importance of gentle smiles
and warm hugs is underestimated in playschool
practice. They claimed it is very significant for
the well-being of the child, as well as for its
4 I use the word playschool for educational settings for children aged 1–6 years old, as is standard
in Iceland.
„Blítt bros og hlýtt faðmlag“