Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 149

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 149
147 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 spegla í fræðilegri umræðu, t.d. umbótastarf Skólarannsóknadeildar á 7. og 8. áratugum (bls. 64-5) og þróun framhaldsskólans með tilkomu fjölbrautaskólanna (bls. 74-5). Þótt höfundur reyni þannig sannarlega að tengja kenningar félagsfræði menntunar við íslenska menntaumræðu er ekki gerð bein tilraun til að tengja þær við heildarbreytingar sem orðið hafa á íslenska menntakerfinu á síðustu áratugum. Hér er mikilvægt verk að vinna. Íslenskt samfélag hefur sannarlega tekið breytingum í aldanna rás. Breytingar undanfarin ár hafa hins vegar verið mjög hraðar og því aukast kröfur á menntakerfið um að aðstoða samfélagið við að átta sig á þeim og takast á við nýjar aðstæður. Möguleg áhrif hruns fjármálakerfis á íslenska menningu, félagsgerð og sjálfsvitund þjóðar er t.d. sérstakt og aðkallandi verkefni félagsfræði menntunar um þessar mundir. Íslenska menntakerfið hefur alla tíð tekið breytingum í takt við breytingar í samfélaginu. Á 20. öld urðu nokkrum sinnum skýr félagssöguleg rof þar sem byggt var upp formlegt skólakerfi í kapp við samfélagsbyltingar og reynt að berja í bresti í almennri menntun og starfsmenntun. Undir lok 20. aldar og einkum í upphafi 21. aldar hafa orðið gagngerar breytingar í íslensku samfélagi sem hafa bein og óbein áhrif á menntakerfið. Hvort sem menn líta til efnahags- og atvinnumála, félagsmála og fólksflutninga eða tækni og samskiptamála má finna nýjar hugmyndir og breytingar sem áhrif hafa á menningarlíf og þekkingarvinnslu, skólamál, menntun og uppeldismál. Vegna örra samfélagsbreytinga fer mikilvægi kennslu og menntunar sem stuðlar að sjálfstæðri hugsun og ígrunduðum skoðunum sífellt vaxandi. Skilgreina þarf þá menntun sem krafist er í nýju samfélagi 21. aldar, ekki einasta á sviði efnahags- og atvinnumála heldur einnig á sviði menningar, þjóðlegrar og fjölþjóðlegrar. Ljóst er af lestri bókar Gests að félagfræði menntunar hefur margt að leggja til umræðu um íslensk menntamál og stefnumörkunar í breyttu samfélagi. Jafnvíst er að félagsfræðileg orð- ræða um breytingar á íslensku samfélagi og þróun menntakerfisins hefur ýmislegt fram að færa í fjölþjóðlega umræðu félagsfræði menntunar. Efla þarf félagfræðilegar rannsóknir á íslenska samfélaginu og styrkja félagsfræði menntunar sem eina meginstoð íslenskra menntunarfræða. Bók Gests Guðmundssonar er bæði þörf áminning og mikilvæg leiðsögn þeim sem bera ábyrgð á þróun íslenskra menntamála. Um höfundinn Sigurjón Mýrdal er deildarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem hann vinnur aðallega að stefnumótun og nám- skrármálum. Áður var hann dósent í mennt- unarfræðum við Kennaraháskóla Íslands. Þar áður grunnskólakennari um árabil. Hann var fyrsti kennslustjóri KHÍ og fyrsti forstöðumaður Fjarskóla KHÍ. Hann situr nú í stjórn CERI, rannsókna- og þróunarstofnunar OECD, samstarfshópi Evrópusambandsins um þróun kennaramenntunar og er formaður NSS, samstarfsnefndar Norðurlandaráðs um skólamál. About the author Sigurjón Mýrdal is a Head of Unit in the Icelandic Ministry of Education and Culture where his tasks include curriculum development and policy making. He has been a teacher at compulsory schools and an associate professor in Education at the Iceland University of Education. At the university he was Dean of academic affairs and later the first Director of the Distance Education Programme. Presently he is a member of the Governing Board of the OECD Centre for Educational Research and Innovation, a member of the EU Cluster Group on Teachers and Trainers and chairman of NSS, the Nordic Council‘s Co-ordination Committee on School Activities. Myndarlegt framlag til faglegrar umræðu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.