Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 154

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2009, Page 154
152 Tímarit um menntarannsóknir, 6. árgangur 2009 Höfundar fjalla meðal annars um lestraráhuga sem talinn er fara þverrandi þegar líður á grunnskólann, og þá ekki síst hjá drengjum. Þar gæti valdið að boðið sé upp á lítt áhugavert efni sem kallar ekki á ígrundun og umræðu Kennaranám Alllangur og greinargóður kafli er í skýrslunni um kennaranám. Sú heildarmynd sem þar er gefin er að flestu leyti rétt, en hana mætti þó skýra betur. Á undanförnum árum hefur sú breyting orðið að umfjöllun um lestur hefur horfið úr kjarna, en henni hefur þó ekki verið hætt. Hún var talsverð fyrir fáeinum árum, og þá mest um lestur og mál yngri barna. Umfjöllun um læsi má þó finna hér og hvar í náminu en þar skortir heildarsýn og útkoman er fremur óljós stefna í þessum málum. Það er rétt að lestri eru eðlilega gerð skil á kjörsviði yngri barna. Þar hefði þó mátt bæta við meiri kennslu um lesskilning, lestrarhvatningu og samvinnu við foreldra. Þetta kjörsvið fjallar um nám og kennslu barna frá 6–10 ára, þ.e. fimm ár af tíu í grunnskólanámi. Umræða hefur verið um að meiri áhersla sé lögð á fyrstu árin en þau síðari sitji fremur á hakanum hvað nám í lestri og ritun varðar. Nú á að bæta úr þessu með 10 eininga námi um íslensku og tjáningu. Á kjörsviði í íslensku er fjallað m.a. um bókmenntir og skilning á þeim, málfræði og stafsetningu. Eitt stutt námskeið var kennt um skeið þar sem fjallað var um íslenskukennslu. Þar fékk lestrarnám og ritun í kennslu rúm, en hvergi nærri nægjanlegt. Nú á að bæta úr þessu og nýtt 10 eininga námskeið hefst í haust sem fjallar um lestur og ritun á mið- og unglingastigi. Það skal þó undirstrikað að kennarar í íslensku fjalla í námskeiðum um móðurmálskennslu í flestum myndum. Þetta starf á kjörsviðum yngri barna og íslensku er langt í frá nægjanlegt þegar á heildina er litið og eftir situr að fjöldi kennaranema fær nánast enga fræðslu um læsi og kennslu í lestri og ritun. Það er afar brýnt að styrkja nám á þessu sviði í kennaramenntun og ekki fært annað en að vinna ötullega að breytingum sem til heilla horfa. Skýrslan gefur m.a. tilefni til þess. Huga þarf rækilega að því hvað gert er í kennaranáminu og hvernig það samrýmist því starfi sem við tekur að námi loknu. Talsvert er rætt í skýrslunni um símenntun kennara. Þar virðist hafa orðið breyting til hins verra á liðnum árum, eftir að kostnaði var velt yfir á skólana. Fé til símenntunar í hverjum skóla ræður, að því er virðist, vali á námskeiðum fremur en þörf kennara og nemenda. Þetta á þó sjálfsagt ekki við í öllum tilvikum. Lokaorð Það er ljóst að íslenska skólakerfið hefur ekki fylgst nægilega vel með þeim miklu breytingum sem hafa orðið á þörf fyrir traust læsi meðal þjóðarinnar. Kröfur hafa verið að aukast jafnt og þétt og greina má talsverðan mun á kröfum til læsis nú eða fyrir 10–15 árum. Þetta má meðal annars lesa út úr alþjóðlegum rannsóknum og ýmsum athugunum, formlegum og óformlegum, sem hér hafa verið gerðar. Þrýstingur á aðrar námsgreinar, bæði í grunnskólum og í kennaranámi, hefur einnig vaxið og nýjar greinar bæst við sem taldar eru nauðsynlegar í nútíma samfélagi. Læsi og þróun ritunar og lestrar hefur orðið hornreka, sennilega vegna þess að ekki er litið svo á að hér sé um námsgrein að ræða. Þetta kemur okkur í koll vegna þess hve þessi færni er mikilvæg fyrir allt nám og andlegan þroska. Bagalegt er að ekki skuli vera meira rúm fyrir svo mikilvægan þátt í of stuttu kennaranámi en raun ber vitni. Nú er kennaranám að lengjast í fimm ár. Þess er vænst að úr rætist en þó virðist lítil von til þess ef marka má fregnir af undirbúningi. Skýrslan er athyglisverð viðbót við þær upplýsingar sem liggja fyrir um stöðu lestrarkennslu í landinu. Rannsóknarrýni
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.