Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Page 6
6
hennar er þakkað samstarfið, einkum Benedikt Hjartarsyni sem hefur veitt
ritstjórum góð ráð við undirbúning heftisins.
Myndaþáttur Einars Fals Ingólfssonar, „Söguslóðir – Úr Njáls sögu“,
kallast skemmtilega á við þema heftisins, ekki síst grein Ann-Sofie Nielsen
Gremaud. Mynd irnar fimm, sem eru hluti af stærra verki, sýna forvitnilegt
samspil samtíma og (bókmennta)sögulegrar fortíðar. Á Rangárvöllum
stendur einmana nýbúi, grenitré sem hefur verið tjóðrað niður eins og
viðbúið sé að það taki sig upp hvað úr hverju. Á Bergþórshvoli stendur
Eggert Haukdal, núverandi ábúandi og fyrrverandi alþingismaður, eins og
þungbúin áminning um hið sögulega samhengi. Hlíðin að Hlíðarenda
hefur verið girt. Stóra-Mörk hefur verið tengd við umheiminn með síma
og það eina sem minnir á fortíðina er íslenskur fjárhundur sem horfir aftur
og út úr mynd. Í Úthlíð stendur eirðarlaus flaggstöng í svolitlum trjálundi
og er fánalaus eins og til að benda á að hún gæti í raun og veru staðið hvar
sem er. Allar myndirnar nema sú af Stóru-Mörk gætu verið teknar hvar
sem er ef ekki væri fyrir myndatextana sem höfundurinn lætur fylgja.
Söguslóðirnar eru í raun og veru horfnar. Í staðinn er kominn samtími sem
ef til vill veit ekki fyrir víst hvað hann heitir – með hverju hann ætti að
flagga.
Í heftinu eru birtar þrjár greinar utan þema. Henry Alexander Henrys-
son fjallar um skynsemina í náttúrunni og náttúrulega skynsemi. Daisy
Neijmann varpar nýju ljósi á þríleik Ólafs Jóhanns Sigurðssonar um blaða-
manninn Pál Jónsson út frá sjónarhorni minnisrannsókna. Og Ásta Kristín
Benediktsdóttir fjallar um skáldsögu Jakobínu Sigurðardóttur, Lifandi
vatnið – – –, út frá kenningum um fjölradda frásagnir.
Sólveig Anna Bóasdóttir og Þröstur Helgason
SÓLVEIG ANNA BÓASDÓTTIR OG ÞRöSTUR HELGASON