Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Blaðsíða 98

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Blaðsíða 98
98 III Tengsl markhyggju við eðlishyggju eru ekki augljós. Ein ástæða þess er sú að tilgangur markhyggju er ekki augljós í neinum þeim útgáfum sem hægt er að rekast á hana í. Tilvist hennar er einnig á reiki. Í raun og veru draga bækur um heimspeki gjarnan upp þá mynd að eftir miðaldir hafi heimspekilegt hlutverk hennar smám saman orðið minna og að á nýöld hafi hún fyrst og fremst komið fram í verkum höfunda sem notuðu enn dulspekilegar tilvísanir í náttúruspeki sinni. Liggur þá oft beint við að draga höfunda eins og Paracelsus fram sem fyrirmynd slíkra hugsuða.20 Þessi verk gefa það enn fremur í skyn að skipulagt brottkast fræðimanna á tilgangsorsökum hafi verið forsenda framgangs vísindalegra skýringa og ef ummerki um þær finnast í ritum nýaldarheimspekinga er það talin nægileg ástæða til að draga vísindalegt framlag þessara rita í efa.21 Það ætti því ekki að koma á óvart að í yfirlitsverkum samtímans um helstu áherslur í frum- speki þá er markhyggja varla nefnd á nafn. Ofangreint viðhorf er þó að mörgu leyti takmarkað. Það er gagnrýni vert meðal annars vegna þess að það byggir á falskri söguskoðun. Margir framsæknustu vísindamenn sautjándu aldar studdust ríkulega við tilgangs- orsakir í náttúruskoðun sinni; þeirra gætir meðal annars í verkum Boyles og Newtons.22 Á átjándu öldinni kemur fram áhrifamikill skóli vísinda- 20 Paracelsus (1493–1541) var einn helsti náttúruvísindamaður endurreisnarinnar, en í dag er hann helst þekktur fyrir áhuga sinn á gullgerðarlist og öðrum dulrænum vísindum. Það sem gerði hann að skotmarki margra gagnrýnenda markhyggju (og skyggir þar með á frumkvöðlastarf hans í læknisfræði svo dæmi sé tekið) var að hann leyfði sér ekki aðeins að halda því fram að allt í heiminum ætti sér útskýringar sem byggðust á markmiðum alls þess sem veröldina prýðir, heldur bætti hann því við að þessi markmið nýttust manninum í hvert sinn. Margir fremstu heimspekingar sautjándu aldar sættu sig kannski við fyrri forsenduna en hikstuðu yfir þeirri seinni. Þessi mannhverfing lifði þó ágætu lífi í náttúruspeki langt fram á átjándu öld. 21 Hér, sem svo oft, er Leibniz nærtækasta dæmið. Hugmyndasagnfræðingar eru tilbúnir að fagna öllu framlagi hans til stærðfræði og eðlisfræði sem þeim þykir þóknanlegt í augum samtímans. Þegar hann nefnir tilgangsorsakir hverfur áhugi þeirra; jafnvel þegar Leibniz nefnir þær í raun aðeins til þess að benda á mögulegt aðferðafræðilegt gildi og lítið annað. 22 Gott dæmi er verk Roberts Boyle A Disquisition about Final Causes of Natural Things frá árinu 1688. Í grein sinni „Robert Boyle’s Defense of Teleological Inference in Experimental Science“, Isis 1/1983, bls. 38–52, færir James Lennox fyrir því ágæt rök að ítarlega, skipulega og óheppilega hafi verið horft framhjá þessu verki Boyles við ritun vísindasögu sautjándu aldar. Ummerki um markhyggju hjá Newton má sjá í riti hans Opticks, or A Treatise of the Reflections, Refractions, Inflections and Colours of Light, 4th ed’n (1730). HeNRy AlexANdeR HeNRySSoN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.