Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Blaðsíða 129

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Blaðsíða 129
129 fyrri kynslóðar (spakmæli móður Gumps, að lífið sé eins og konfektkassi, var um tíma á flestra manna vörum) á meðan heimurinn í kringum þá, gildi hans og lífshættir, verða fyrir miklum breytingum þannig að þeir sjálfir verða að tímaskekkjum. Báðir eru þeir viðstaddir sögulega atburði en á sama tíma, að vissu leyti, fjarverandi vegna eigin skilningsleysis og aðgerðaleysis. Og báðir bregðast þeir við með því að taka til fótanna, hvor þó með sínum hætti. Sögurnar gerast einnig báðar á tveimur ólíkum tíma- plönum: á meðan Páll eldri skrifar endurminningar sínar rifjar Forrest upp fortíðina á bekk þar sem hann bíður eftir strætisvagni. Þó að kvikmyndin hafi notið vinsælda meðal almennings sætti hún verulegri gagnrýni. Sumir töldu að hún forðaðist að takast á við erfiða atburði í sögu Bandaríkjanna með því að hafa sætan hvolpeygðan dreng í brennidepli.31 Gagnrýnendur furðuðu sig nokkuð á vinsældum aðal- persónunnar og gekk illa að útskýra þær.32 Minnisfræðingurinn Susannah Radstone lagði til nýja nálgun og skoðaði myndina sem trámatexta.33 Hún álítur persónu Forrests Gump vera tákn þeirra einkenna sem hafa verið tengd við trámatískar minningar. Freud notaði orðið „Nachträglichkeit“, eða afturvirkni, til að lýsa því sálræna ferli þar sem endurskoða þarf upp- lifanir og minningar um þær eftir á til að finna þeim stað á nýju þróun- arskeiði eða sem hluta af nýrri reynslu. Breski sálfræðingurinn Ian Craib skilur tráma þannig að þótt rof verði til í minninu, þá man einstakling- urinn eftir þessu rofi en leiðir það markvisst hjá sér. Það að muna en snúa sér undan er sálræn athöfn sem skilur eftir sig ummerki. Afturvirkni getur kallað fram þessi ummerki með því að endurskoða reynsluna en þá er byrjað á því að umbreyta líflausri fortíð og leysa hug manns undan óhugs- anlegu og óhugsuðu álagi.34 Í túlkun Radstones á Forrest Gump verður aðalpersónan eins konar persónugervingur afturvirkni: Forrest táknar eyðu í minningum banda- rísku þjóðarinnar um trámatíska stórviðburði í sögu hennar. Það að viður- kenna að eyðan sé til staðar og skilja hvað gerðist, krefst tíma – „biðtíma“ hins trámatíska viðburðar.35 Hún telur að gagnrýnendur kvikmyndar- 31 Clive Barnes, „The Gumping of America“, Evening Standard 17. ágúst 1994, bls. 13. 32 Jonathan Romney, „Transatlantic Gumption“, New Statesman and Society 14. októ- ber. 1994, bls. 41. 33 „Screening Trauma“, 2000. 34 Ian Craib, The Importance of Disappointment, London: Routledge, 1994. 35 Cathy Caruth, Unclaimed Experience, bls. 17. HRINGSÓL UM DULINN KJARNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.