Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Qupperneq 15
15
verða þætti í dönskum viðtökum verka íslenskra rithöfunda sem skrifa á
dönsku í upphafi 20. aldar.23 Hann bendir m.a. á ritdóm frá árinu 1920 um
eitt af verkum Gunnars Gunnarssonar en þar líkir danski gagnrýnandinn
Oscar Geismar Gunnari við jökulstorm sem svalar „menningarþreyttu“
enni Danmerkur. Þannig eru Íslendingar tengdir við náttúruöflin og þeim
lýst sem eins konar göfugum villimönnum, en stöðu Danmerkur er lýst
sem hinni lærðu andstæðu sem hefur náð yfirlætislegum og óheilbrigð-
um hápunkti. Þrátt fyrir jákvæðan tón í lýsingu danskra gagnrýnenda á
Íslendingum sem náttúrulegum og ósnortnum,24 viðheldur djúplæg form-
gerð evrópskra valdasambanda neikvæðum aukahljómi lýsingarorðanna.
Þessa lýsingu telur Jón Yngvi einkennandi fyrir ritdóma um íslenskar bók-
menntir á þessum tíma, en í henni birtast einnig algengar hugmyndir um
samband Íslands og sumra annarra Evrópuþjóða sem enn eru við lýði í
menningarlífi okkar tíma, líka á bókasýningunni í Frankfurt.
Gluggi og spegill. Umræður um möguleika annarleikans
Á bókasýningunni í Frankfurt haustið 2011 var Ísland kynnt með fyrir-
sögninni Sagenhaftes Island. Þýska lýsingarorðið sagenhaft felur í sér fleiri
en eina merkingu sem vísa til þess að eitthvað sé þekkt úr sögum, ekki
raunverulegt, eða til þess að eitthvað sé stórkostlegt.25 Áhrifa þessara
merkingarfræðilegu tengsla gætir eðlilega í umfjöllun þýskra fjölmiðla um
kynninguna á Íslandi. Enska orðið fabulous felur einnig í sér orðsifjaleg
tengsl við hið ævintýralega eða ýkta og hið stórkostlega. Íslenska orðið
sögueyjan er ekki tvírætt á sama hátt, en í því felst hins vegar nákvæmari
landfræðileg skírskotun til sagna og bókmennta. Í þýsku og íslensku fyrir-
sögninni felur skírskotunin til bókmenntanna í sér enduróm sem vísar í
aðra staðsetningu, stað annarleikans, sem hefur útópíska og heterótópíska
eiginleika.26 Heitið Sögueyjan skírskotar til Íslands með áherslu á bók-
23 Jón Yngvi Jóhannsson, „„Jøklens Storm svalede den kulturtrætte Danmarks Pande“.
Um fyrstu viðtökur dansk-íslenskra bókmennta í Danmörku“, Skírnir vor 2001.
24 Sjá nánar greinargerð um málnotkun gagnrýnendanna Oscars Geismar og Arnes
Møller í Jón Yngvi Jóhannsson, „„Jøklens Storm svalede den kulturtrætte Dan-
marks Pande“. Um fyrstu viðtökur dansk-íslenskra bókmennta í Danmörku“, bls.
36–37.
25 Sagenhaft ber svipaða merkingu og þýsku lýsingarorðin märchenhaft, fabelhaft,
unglaublich, legendär, wunderbar. Mörg þeirra skírskota til skáldskapar, einhvers
óraunverulegs eða ævintýralegs.
26 Í ensku fyrirsögninni er þessi túlkun tengd margræðri orðsifjalegri merkingu og
því ekki eins augljós.
ÍSLAND SEM RýMI ANNARLEIKANS