Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Side 19
19
óróleikinn hafi vikið fyrir stöðugleikanum, en frá því á miðöldum, segir á
síðunni, „hefur sjálfsmynd þjóðarinnar verið nátengd bókmenntum“.38
Bókasýningin í Frankfurt var mikilvægur vettvangur fyrir markaðssetn-
ingu Íslands sem einnig má líta á sem þátt í því að takast á við áfall. Þar
gafst tækifæri til að endurnýja mynd fjölda alþjóðlegra gesta af Íslandi, en
fjölmiðlar lögðu einnig áherslu á gagnímyndirnar, bæði beint og óbeint. Í
greininni „Wenn die Aktienkurse in den Keller rauschen, steigt der Wert
der Literatur“ í Zeit Literatur,39 er komið inn á innri markmið á óbeinan
hátt. Íslenskar bókmenntir og menning eru þema textans, en beggja vegna
hans eru stórar ljósmyndir af íslensku landslagi. Á nokkrum þeirra er
Íslendingum stillt upp í forgrunni. Myndbyggingin minnir á hefðbundn-
ar ljósmyndir þjóðfræðinnar sem sýna innfædda í heimkynnum sínum.
Fataframleiðandinn 66°NORÐUR notar líka þessa myndbyggingu í aug-
lýsingum sínum á ensku. Tveir Íslendingar, ung kona í borgarklæðnaði
samkvæmt nýjustu tísku og eldri maður í hversdagslegum búningi, standa
á mörkum hringvegarins og landslags sem sveipað er mistri. Litirnir eru
ljósir jarðarlitir, augnaráðið er ákveðið og allt að því dapurlegt. Með þessari
framsetningu, sem gjarnan er viðhöfð þegar framandi menningarheimar
eru kynntir fyrir evrópskum lesendum, er skírskotað til Íslands sem „ann-
ars staðar“. Manneskjurnar tvær verða jafnframt fulltrúar hefðbundinnar
dreifbýlismenningar þótt klæðnaður konunnar vísi einnig til nútímaþétt-
býlismenningar á Íslandi – litavalið er þó í samhljómi við náttúruna.
Eins og kemur fram í fyrirsögninni „Ein Ort der Magie“40 er hér lögð
áhersla á töfra sem æðra áhrifavald á Íslandi: „Töfrar markaðarins leystu
töfra álfanna af hólmi.“41 Það sem er öðruvísi í umfjölluninni um Ísland
í greininni í Zeit Literatur er að töfrar tengja efnahagsmál, menningu og
bókmenntir. Mangold snertir mikilvægt atriði, sem er að á Íslandi var
kreppan notuð til að styrkja sérvitringslega sjálfsmynd sem byggð er á
menningu jafnt sem náttúru og með því var Ísland dregið inn í miðju
alþjóðlegrar vitundar.42 Þetta kemur einnig ferðaþjónustunni vel, því
fólk vill upplifa hlutina af eigin raun. Michael Herzfeld bendir á að vegna
38 http://www.sagenhaftes-island.is/islenskar-bokmenntir/ [sótt 3. febrúar 2012].
39 Ijoma Mangold, „Wenn die Aktienkurse in den Keller rauschen, steigt der Wert
der Literatur“, ljósmyndir: Rafal Milach, Zeit Literatur Nº 41 – október 2011.
40 Laura Wagner, „Ein Ort der Magie“.
41 Sjá Ijoma Mangold, „Wenn die Aktienkurse in den Keller rauschen, steigt der Wert
der Literatur“, bls. 22. Á frummálinu: „Die Zauberkraft der Elfen wurde durch die
Zauberkraft der Märkte ersetzt.“
42 Sama heimild, bls. 23.
ÍSLAND SEM RýMI ANNARLEIKANS