Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Side 128
128
rétt eins og ég hygðist hlaupa af mér geig minn við ókomna tíð.
Einmitt þetta hafði stundum borið við á bernskudögum mínum og
unglingsárum, að ég tæki til fótanna undan kvíða og hugarangist.
Guð minn góður, sagði ég við sjálfan mig […]. Er ég enn á sama
stigi og forðum? […] Hvert á að hlaupa, með leyfi að spyrja? Hvert
á að flýja? Til annarra hnatta – eða hvað? (DS 486)
Í lok þriðja bindis lætur hann loksins verða af því að taka afstöðu en þó á
svo yfirlætislausan hátt að ætla má að lesandinn verði fyrir vonbrigðum –
en að því verður vikið nánar í greinarlok. Sjálfur talar Páll um „duldar til-
finningar“ og „hnút sem ég hafði margsinnis gefizt upp við að leysa“ (SH
144).
Aðgerðaleysið sem einkennir Pál þangað til í lok verksins er hægt að
skoða sem afleiðingu meðvitaðrar ákvörðunar hans þegar hann fer að
vinna hjá Blysfara: „Ég fór smám saman að reyna að temja mér andlegt
hlutleysi, dylja skoðanir mínar, keppast við að þegja ...“ (G 132). Enda þótt
Páll sé einkum að ræða um afstöðu sína til vinnunnar þá fer hann almennt
afar dult með skoðanir sínar og þegir alveg frá sögubyrjun – frá því, nánar
tiltekið, þegar hann hættir að yrkja og gangvirkið í brjósti hans hægir á sér:
þegar heimsstyrjöldin skellur á. Það eru því greinilega tengsl milli afstöðu
Páls og styrjaldarinnar.
Hér að ofan var útskýrt hvernig minnistexti einkennist af rofum, úrfell-
ingum og eyðum. Mér sýnist að túlka megi Pál yngri sem slíka „eyðu“ í
textanum. Þar með fjallar sagan ekki einungis um endurminningar heldur
verður sjálf dæmi um minningaferlið. Páll eldri lítur aftur í tímann og á
sjálfan sig sem hann hafi verið fjarverandi á sögulegum tímum og fjarver-
andi í minningum – hlutlausa eyðu sem hann reynir að ná tökum á. En til
hvers?
Íslenskur Forrest Gump?
Árið 1994 sló kvikmyndin Forrest Gump (leikstjóri Robert Zemeckis),
sem byggist á samnefndri skáldsögu eftir Winston Groom (1986), óvænt
í gegn. Aðalpersónan í myndinni, leikin af Tom Hanks, er ekki ósvipuð
Páli: skilningssljór, aðgerðalaus, saklaus mömmudrengur úr sveitinni sem
upplifir eitt umbrotamesta tímabil í sögu Bandaríkjanna á 20. öld (afnám
kynþáttamisréttis, Víetnamstríðið, Watergate-málið, morðið á Kennedy
forseta, hippatímabilið). Báðir lifa þeir samkvæmt spakmælum og siðferði
dAiSy NeijmANN