Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Síða 143
143
ýmsar óhefðbundnar leiðir sem rithöfundar nota til að koma sögu sinni á
framfæri, þar á meðal svonefndar fjölradda frásagnir (e. multipersoned nar-
ratives),7 en Lifandi vatnið – – – er afar athyglisvert dæmi um slíkt verk.
Maður týnist
Pétur Pétursson, aðalpersóna Lifandi vatnsins – – –, býr í Reykjavík ásamt
fjölskyldu sinni en einn daginn stingur hann af og fer með rútu út á land
að heimsækja bernskuslóðir sínar. Pétur býr í samfélagi sem einkennist af
firringu og hlutgervingu. Eins og Turið Sigurðardóttir Joensen hefur bent
á í grein um Lifandi vatnið − − − eru þar engin bein tengsl á milli fram-
leiðslu og neyslu, einstaklingurinn er eins og hlutur án vitundar og tilfinn-
inga, stofnanir bera ábyrgð á geðheilsu manna og meirihluti fólks trúir því
að ríkjandi ástand sé hið eina hugsanlega. Þetta ástand flýr Pétur og leitar
einhvers konar lausnar eða frelsis á æskuslóðunum í sveitinni en kemst að
því að ekkert er eins og það var, allt sem hann leitar að er horfið, breytt eða
dáið.8 Geðveiki Péturs fer stigvaxandi eftir því sem líður á og í lokin lendir
hann inni á stofnun og er sprautaður niður; hið firrta nútímasamfélag
tekur við honum og drepur niður alla löngun hans og getu til að flýja.
Í Lifandi vatninu – – – er blandað saman ýmsum frásagnaraðferðum og
mörgum textagerðum; þar birtast einræður, dramatísk eintöl, samtöl og
jafnvel fréttatilkynningar og verkið í heild er mikið púsluspil. Sögusviðin
eru að minnsta kosti fjögur: a) Nútíðarsvið heima hjá Pétri þar sem fjöl-
skyldan bregst við hvarfi hans, b) nútíðarsvið þar sem sjónarhornið er
Péturs og sagt er frá ferðalagi hans, c) fortíðarsvið þar sem sagt er frá ævi
Péturs, og loks d) órætt svið þar sem ónafngreindar raddir skiptast á skoð-
unum í upphafi og undir lok bókar. Einnig má líta svo á að auglýsingar
og fréttatilkynningar sem er að finna á milli annarra kafla tilheyri óræða
sögusviðinu. Síðast en ekki síst er sögumaður Lifandi vatnsins − − − ekki
allur þar sem hann er séður og ekki er alltaf ljóst hver hann er eða hver
tengsl hans eru við aðalpersónuna Pétur.
Á nútíðarsviðinu á heimili Péturs fá lesendur að kynnast viðbrögðum
konu hans, barna og fleiri við hvarfi hans. Þessi þráður sögunnar er afmark-
7 Ég hef áður notast við þýðinguna margpersónufrásagnir en hef nú kosið að tala um
fjölradda frásagnir.
8 Turið Sigurðardóttir Joensen, „Lýst er eftir Pétri Péturssyni verkamanni. Nokkrar
athuganir á samfélagslýsingu skáldsögunnar Lifandi vatnið eftir Jakobínu Sigurð-
ardóttur“, Tímarit Máls og menningar, 2/1977, bls. 154–181, hér bls. 167−174.
„FORM OG STÍLL öRÐUGT VIÐFANGS“