Skagfirðingabók - 01.01.1985, Page 43
ARNI I VIK
helst á Reykjarhóli æskulýðsskóla“. í fundargerð þessa fyrsta
fundar Varmahlíðarfélagsins er talað jöfnum höndum um
æskulýðsskóla, alþýðuskóla og héraðsskóla. Augljóslega er hér
verið að ræða um skóla af svipuðu tagi og þá héraðsskóla sem
þegar höfðu verið stofnaðir á nokkrum stöðum á landinu fyrir
forgöngu Jónasar frá Hriflu. Þess má geta að þar sem héraðs-
skólar höfðu risið (hinn síðasti á Reykjum í Hrútafirði) höfðu
heimamenn lagt til þeirra drjúgan skerf. Rétt er og að hafa í
huga að áhugamannafélög gátu samkvæmt lögum verið aðilar
að héraðsskólum, ásamt sýslu og ríki.
Þegar á árinu 1930 hafði ríkið fyrir tilstilli Jónasar frá Hriflu
keypt Reykjarhólsgarðinn svonefnda af Garðyrkjufélagi Seylu-
hrepps „með tilliti til þess að þar risi upp menningarstofnun
fyrir héraðið“ (.Hœstaréttardómar 1965, 179). Þessi landspilda
var 7,7 ha að stærð úr landi Reykjarhóls og voru þar allar hinar
heitu uppsprettur svæðisins. Þennan garð tók Varmahlíðarfé-
lagið á leigu af ríkinu árið 1937. Gísli Magnússon í Eyhildar-
holti benti á það á fyrsta fundi félagsins, að kaup ríkisstjórnar-
innar á Reykjarhólsgarðinum hefði verið „heppileg ráðstöfun“.
Athygli vekur að næstum sex ár líða frá umræddum kaupum
þar til Varmahlíðarfélagið er stofnað. Heimamenn hafa úr
fjarlægð fylgst með þeim héraðsskólum sem voru að rísa á
þessum árum og áttað sig á gildi þeirra. En þetta tók sinn tíma,
og víst er, að sumarið 1934 er ekki sú vakning orðin í héraðinu
sem síðar varð. Þetta ár er nýbýlið Varmahlíð úr landi Reykjar-
hóls til sölu og kaupandinn er einstaklingur óháður skólaáhuga-
mönnum. Lá land þetta sunnan að Reykjarhólsgarði, um 20 ha
að flatarmáli. Eftir stofnun Varmahlíðarfélagsins varð skjótt
augljós þörfin á þessu viðbótarlandi, sbr. nafn félagsins, sem
þegar var komið í lög þess 1937. Ríkið kaupir nýbýlið Varma-
hlíð árið 1940 eftir að eignarnámslög þar um höfðu verið sett.
Tveimur árum áður hafði ríkissjóður keypt sjálfa jörðina
Reykjarhól. Síðan gerist það hinn 7. nóvember 1941 að ríkið
selur Varmahlíðarfélaginu allar Reykjarhólseignirnar.
41