Jón á Bægisá - 01.04.1997, Side 52

Jón á Bægisá - 01.04.1997, Side 52
William D. Valgardson Maðurinn sem alltaf vantaði salernispappír Þegar Einar, móðurbróðir minn, rak sig á heimsku eða óréttlæti sem voru ofvaxin hans skilningi, reið hann hvítu hryssunni sinni lengst norðaustur á landareign sína. Þar, í eikarlundi, með aðra höndina í faxi hestsins og hina um vískíflöskuna, hélt hann fyrirlestur yfir guði. Þrátt fyrir eða kannski vegna þess að hann var ókvæntur bauð hann okkur alltaf heim á sunnudögum eftir messu. Mamma kom með hádegismatinn í körfu. Einar eldaði kvöldmatinn. Sunnudagarnir voru með hefðbundnu sniði. Þegar við komum vorum við þötruð í sparifötunum okkar, lyktandi af mölkúlum og dyggðugu líferni. Einar rétti föður mínum heimabruggaðan bjór. Og það var alltaf kanna af epladrykk handa okkur krökkunum. Móðir mín var veil í maga og handa henni bjó hann til rósate í postulíns- katli. í eldhússkápnum var samsafn af könnum sem hann hafði fengið á bensínstöðvum eða í pósti, með áletrunum eins og fimmtíu og fjórar gráður norður eða Campbells súpur. Þó hafði hann keypt fínan bolla og undirskál hjá Eatons. Það var í þessu fína, brothætta postulíni sem hann bar móður minni litlausan næstum gagnsæjan vökva með hunangstári. Hann átti heima á gamaldags sveitabæ á tveim hæðum, þetta var hátt hús með bröttu þaki. A því voru tvennar forstofudyr, hvorar yfir öðrum. Neðri dyrnar voru á jarðhæð, en þær efri beint yfir þeim og lágu frá svefnherbergi hans. Það var enginn stigi eða svalir við þenn- an efri inngang, aðeins sléttur viðarveggur og dyr sem opnuðust út í bláinn. Þegar mamma var spurð um þetta, sagði hún að þetta væru dyr hans að himninum og þegar Einar dæi færi hann út um þær og í hendur guðs. Einar sagði að þær væru þarna vegna þess að þegar smiðurinn í sveitinni hefði verið ráðinn til að byggja tveggja hæða hús hefði hann notað sömu teikninguna að báðum hæðunum og hefði ekki verið nógu gáfaður til að sleppa dyrunum. Á nýja baðherberginu hans Einars með hvítum flísum og glans- andi postulíni (hann lét fyrstur manna í sveitinni leggja vatnslagnir innanhúss) var salernispappírinn oft búinn. Þegar mamma nefndi þetta ofurlítið þreytulega, sagði Einar að rúllan hefði verið að klárast og hann ætlaði að kaupa meira næst þegar hann færi í kaupfélagið. Hann var sparsamur - sumir sögðu nískur - og auk þess að rækta grænmeti sem hann súrsaði og fylla kartöflugeymsluna af káli, gul- rótum og kartöflum, reyndi hann að spara eftir fremsta megni. Auk vinnufata átti hann ein jakkaföt og eina hvíta skyrtu og að því er ég veit tók hann sér aldrei frí. Af því að hann hafði haldið til á sléttun- um í ungdæmi sínu var hann líka róttækur í stjórnmálum. 50 TÍMARIT ÞÝÐENDA 1*1997
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.