Jón á Bægisá - 01.10.2009, Page 38
Eysteinn Þorvaldsson
Að sjá ljóðið rísa hærra
Helgi Hálfdanarson um skáldskap að fornu og nýju
Það er af mörgu að taka þegar hugað er að fjölþættu bókmenntastarfi Helga
Hálfdanarsonar. Drjúgur hluti þess er rannsóknir á kveðskap og umfjöll-
un um ýmsar eigindir ljóða, um einstök skáld, um ýmis álitamál í skáld-
skapnum og einstök kvæði forn og ný. Að þessum verkum hans verður
hér hugað sérstaklega og skrafað um þau í stuttu máli. Skyld bókmennta-
umfjölluninni eru greinar Helga, erindi og pistlar um íslenska tungu en
um íslenskuna fjallar hann bæði af smekkvísi og kunnáttu enda eru þessi
hugðarefni nátengd. I erindi hans „Mál og kveðskapur", sem prentað er í
Molduxa stendur þetta:1
íslensk tunga er effaust mjög vel fallin til yrkinga, orðmörg og orðfrjó
og þjál í öllum umsvifum. Og sennilega hefur efnahagur þjóðarinnar
á liðnum öldum valdið því að nokkru, að hvers konar listhneigð hlaut
einkum að fá útrás í list orðsins.
Kveðskapur var sú list sem óháðust var kröppum kjörum og sú andlega iðja
sem þjóðin kunni best lengi vel. Helgi hefur fylgst með íslenskum kveð-
skap og erlendum frá elstu tíð og til samtímans. Hinu elsta og merkasta
ljóði Islendinga, Völuspá, hefur hann gert betri skil en nokkur annar. Ekki
fer á milli mála að Helgi hefur, eins og fleiri, mætur á kvæðum Jónasar
Hallgrímssonar. Um þau hefur hann oft fjallað eins og sjá má í ritgerða-
og erindasafni hans, Molduxa-, þar er m.a. að finna greinargóða umfjöllun
um þýðingar Jónasar á kvæðum effir Heinrich Heine. Helgi setur fram
sannfærandi skoðun um lestur og skilning á kvæðum Jónasar með ýmsum
nýstárlegum skýringum. Helgi hefur ekki fjallað sérstaklega um ljóð yngri
i Molduxi. Mál og menning 1998, bls. 15.
3<S
á Æaytiiá - Tímarit um þýðingar nr. 13 / 2009