Þjóðmál - 01.12.2009, Page 17
Þjóðmál vetur 2009 15
Ögmundur hafði and styggð á sleikju hætti Samfylk ing
ar inn ar gagnvart útrásar auð mönn
um . Sígild vinstri pólitík er barátta
fyrir bættum kjörum og auknum
rétti ndum þeirra sem lakast standa .
Stjórn málamenn sem kenna sig
við félags hyggju og réttindabaráttu
launa fólks eru með fyrirvara á auð
mönn um enda hags munir ólíkir .
Samfylkingin taldi sig sækja her
fræði sína til Tony Blair formanns
breska Verkamannaflokksins sem
dró úr róttækni flokksins, t .d . með
því að afnema sannheilagan texta
harðasta kjarna flokksins um þjóð
nýt ingu . Blair færði flokkinn nær
bresku milli stéttinni og vingaðist
við efnamenn . Á Íslandi eru
aðstæður nokkuð aðrar og Sam
fylkingin var ekki með róttæka
stefnu frá gamalli tíð sem þurfti að
endur nýja .
Viðhlæjendur sem Samfylkingin
valdi sér úr röðum auðmanna voru
menn eins og Jón Ólafsson í Skífunni
og Jón Ásgeir Jóhannesson sem
einatt er kenndur við Baug . Báðir
Jónarnir, og raunar Sigurður Kaupþingsstjóri
líka, höfðu með einum eða öðrum hætti
fundið fyrir vanþóknun Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra .
Davíð Oddsson var þó ekki máttugri en svo
að allri þrír ofantöldu stunduðu sín viðskipti
og urðu efnamenn á valdaárum Davíðs . Tveir
þeirra, Jón Ásgeir og Sigurður, urðu moldríkir
á vakt Davíðs í stjórnarráðinu . Ef völd Davíðs
hefðu verið jafn ógurleg og af var látið er
tæplega hægt að segja að hann hafi beitt þeim
af krafti .
Davíð var ekki í sterkari stöðu en svo að
þegar hann árið 1995 vildi skipta út mennta
málaráðherra, Ólafi G . Einarssyni fyrir Björn
Bjarnason, var það ekki fyrr en eftir jamm
og japl að Ólafur G . féllst á að taka að sér
forsetastörf á Alþingi . Það þurfti að smyrja
þykkt oná embættið með einkabílstjóra og
þess háttar til að fyrrverandi sveitarstjórnar
mað ur úr Garðabæ léti segjast . Björn var ná
inn sam verka maður Davíðs og í flestum rík
jum sem við berum okkur saman við hefði
verið talið sjálfsagt að formaður ríkisstjórnar
flokks hlutaðist til um ráðherraembætti . Ekki
hér á Íslandi . Hér eru skorður við völdum
flokks formanna . Þingmenn eru með umboð
frá kjósendum og geta sem slíkir staðið uppi
í hárinu á oddvitum flokka . Þegar boðvald
Davíðs er ekki meira en svo í eigin flokki er
tæplega hægt að gera ráð fyrir að hann geti
setið yfir hvers manns hlut . Nema, auðvitað,
fjölmiðlaveldi og stjórnmálaflokkur sam ein ist
um að framreiða tilbúinn veruleika .