Þjóðmál - 01.12.2009, Qupperneq 18

Þjóðmál - 01.12.2009, Qupperneq 18
16 Þjóðmál vetur 2009 Upp úr aldamótum eignast Baugur nær alla einkareknu fréttafjölmiðla landsins utan Morgunblaðið . Forkólfur Baugs, Jón Ásgeir Jóhannesson, keypti til sín fólk sem átti að tryggja velvild í stjórnkerfinu . Fyrrverandi aðstoðarmaður Davíðs og formað ur einkavæðingarnefndar, Hreinn Loftsson, er fenginn í stjórn Baugs ásamt Guðfinnu Bjarna dóttur, rektor Háskólans í Reykjavík og verðandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og Þor geiri Baldurssyni sem kenndur er við prent smiðjuna Odda . Þegar Davíð gagnrýndi yfirþyrmandi stöðu Baugs reyndi Hreinn að bera á hann fé, 300 milljónir króna . Forsætisráðherra beit ekki á agnið . Næsta skref var að virkja fjölmiðla veldi Baugs gegn forsætisráðherra . Baugur og Samfylkingin sameinuðust um að gera grýlu úr Davíð Oddssyni . Í því skyni var margfalt meira gert úr völdum formanns Sjálfstæðisflokksins en efni stóðu til . Hvorki Davíð, þingmenn Sjálfstæðis flokks­ ins né aðrir höfðu fyrir því að setja hlutina í rétt samhengi . Stjórnmálamenn tala ekki niður eigin völd og áhrif . Þeir hneigjast til hins gagnstæða og láta sér vel líka að andstæðingar taki undir . Baugur sogaði til sín hverskyns loddara sem vildu gera sig gildandi í öruggu skjóli öflugrar fyrirtækjasamsteypu . Einn þeirra var Hallgrímur Helgason rithöfundur, sem er eignuð bláa höndin: Hvað eftir annað hefur okkur brugðið í brún . Hinn eitt sinn frelsisboðandi forsætisráðherra hefur ítrekað veist að spútnikfyrirtækinu Baugi: Hótað að brjóta það upp sem og brjálast yfir kaupum þess á hlut í FBA . Við sem heima sitjum skiljum ekki hvers vegna guðfaðir nýja hagkerfisins snýst gegn bestu börnum þess . Við skiljum ekki hvers vegna sjálfstæðismenn beita öllu sínu gegn sjálfstæðustu mönnum landsins . . . Við sem heima sitjum og skiljum ekki andúð forsætisráðherra gagnvart bestu viðskiptasonum Íslands, við spyrjum: Hvers vegna? Og eina svarið sem okkur dettur í hug er að hann sé einfaldlega búinn að sitja of lengi . Gamla góða góðærissólin geislar nú engu frá sér öðru en ótta . Hallgrímur Helgason rithöfundur í grein í Morg­ un blaðinu 13. september 2002 undir fyrirsögn­ inni: „Baugur og bláa höndin“. Til að hamla gegn ofurvaldi Baugs miðla hafði Davíð forgöngu um fjöl miðla­ frumvarp . Sam fylkingin var helsti bandamað­ ur Baugs . Vorið 2004 er fjölmiðlafrumvarpið sam þykkt á þingi en hafnað af forseta, Ólafi Ragnari Grímssyni, sem neitaði að skrifa und ir lögin og féllu þau dauð niður þar með . Nokkur dæmi um hugarfarið í fjölmiðlaslagnum eru tí unduð í bókinni: Nú þurfa frjálshuga menn að taka höndum saman og hleypa þessari ógnarstjórn frá . Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, í Fréttablaðinu 25. apríl 2004, í tilefni af því að unnið var að setningu laga um fjölmiðla. Allt frá því að nokkrum aðilum með Baug í broddi fylkingar tókst að bjarga Norðurljósafjölmiðlunum frá falli hafa stjórnarþingmenn með forsætisráðherra í broddi fylkingar farið hamförum í því að níða niður starfsfólk fjölmiðla Norðurljósa . . . Allt hefur þetta borið glögg merki þess að stjórnarherrarnir vildu koma á ritskoðun og það er ástæða þess að við rafiðnaðarsambandsmenn höfum tekið svona afgerandi afstöðu gegn þessu . Guðmundur Gunnarsson, formaður rafiðnaðar­ sam bandsins, á fundi starfsmanna Norðurljósa 4. maí 2004, til að mótmæla frumvarpi til fjöl­ miðlalaga. Ég hef séð menn algjörlega fara hamförum, líkja honum [Davíð Oddssyni] við Adolf Hitler og gjörsamlega missa stjórn á sér . Og maður horfir á þetta fólk, sem stundum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.