Þjóðmál - 01.12.2009, Blaðsíða 20
18 Þjóðmál vetur 2009
vera í senn góður Íslendingur og glæsilegur
fulltrúi þess besta sem gerist í veröldinni,
að tækifæri Íslendinga í hinu nýja hagkerfi
heimsi ns jafnast á við það besta sem gerist í
öðrum löndum, að við getum svo sannarlega
sameinað að vera í senn sjálfstæð þjóð og
raunverul egir heimsborgarar í hugsun, við
skiptum og framgöngu allri .
Ólafur Ragnar Grímsson í ávarpi við opnun
Kaupþings banka í Lúxemborg 18. apríl 2000.
Bók Óla Björns dregur saman tilvitnanir um útrásarárin úr fjölmiðlum, bloggi
með töldu, og raðar í 19 kafla . Pólitík, við
skipti og fjölmiðlar þrinnast saman í þráð sem
spannar árabilið 2003 til 2009 . Yngsta til
vitn unin er frá seint í október í haust . Hér er
dregið saman forvitnilegt hráefni um hrunið .
Bókin er hvergi nærri tæmandi, eins og sam
setjari tekur fram . Hér er um að ræða augna
bliks myndir sem þó segja oft allnokkra sögu .
Margir koma við sögu, sumir í hálfskondnu
samhengi . Magnús Þór Hafsteinsson, fyrr
um þingmaður Frjálslynda flokksins, er með
blogg færslu sem fór nokkuð víða en þar skrifar
hann dýrt myndmál og heggur á báðar hendur .
Magnús Þór sá að sér og baðst afsökunar .
Reynir Traustason ritstjóri DV kemur
reglu lega fyrir í bókinni og hann hefur ekki
end ur skoðað afstöðu sína til Baugs . Reynir
talar galvaskur á útifundi Norðurljósa 2004
til að mótmæla fjölmiðlalögum . Hann er
aftur á ferðinni í bók Óla Björns fjórum árum
síðar þegar blaðamaður tók upp samtal þar
sem Reynir viðurkennir að sitja á frétt vegna
hagsmuna Hreins Loftssonar, eiganda DV .
Í útrásarblaðamennsku er Reynir á sér
stökum bás . Hann skrifaði fréttina 1 . mars
2003 í Fréttablaðið sem skáldaði upp aðkomu
Davíðs að húsrannsókn yfirvalda hjá Baugi en
fréttin braut í blað í ofsóknarblaða mennsku
á Íslandi .
Útrásartímabilið er um auð og völd og
menn sem kunnu með hvorugt að fara . Síðasta
tilvitnunin er frá stjórnarformanni Baugs og
er það við hæfi nú þegar útrásin er að baki og
Baugur gjaldþrota:
Í mínum huga er Baugur Group hf . eitt
glæsilegasta afsprengi þess frelsis í viðs kipta
lífi Íslendinga er leiddi af einkavæðing unni
og inngöngunni í Evrópska efnahags svæð ið .
Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs Group
hf., í Viðskiptablaðinu 16. júní 2006 .
Jón og Jón Ásgeir
Gamla fólkið talaði um að það væri munur á að heita Jón og séra Jón . Við getum talað um að það
sé munur á að heita Jón og Jón Ásgeir .
Björgólfur Guðmundsson þurfti að setja per sónu
leg veð fyrir öllum sínum lánum svo að hann er per
sónulega gjaldþrota . Jón Ásgeir þurfti ekki að setja
pers ónuleg veð fyrir sínum lánum og á þess vegna enn
fyrir Diet Coke eins og hann orðar það .
Baldur Guðlaugsson þarf að sæta kyrr setn ingu
eigna sinna . En Jón Ásgeir sem skuldaði lang mest
allra útrásarvíkinganna hefur enn ekki þurft að sæta
kyrr setningu eigna sinna á Ís landi . Hvers vegna var
ekki byrjað á sjálfum skulda kónginum?
Fjölmiðlar (sérstaklega DV = Davíð Vondur) æpa
og öskra þegar aðrir eyða færslum á netinu . En þegar
Jón Ásgeir lét í dag eyða myndinni af Baugs veisl unni
í Monaco út af Youtube sagði enginn neitt . Sem betur
fer höfðu meira en fjörutíu þúsund manns getað horft
á hvað Jón Ásgeir gerði við peningana sem hann tók
að láni í íslensku bönkunum .
Fyrri eigendur Árvakurs þurftu að sæta því að hluta
fé þeirra fór niður í núll og þeir misstu Morgun blaðið .
Jón Ásgeir gat flutt hlutafé sitt í 365miðlum út úr
Baugi með samþykki Landsbank ans . Hann stjórnar
enn Fréttablaðinu, Stöð tvö og DV.
Þegar Björgólfsfeðgar buðu greiðslur upp í helm
ing af skuldum sínum gegn því að afgang urinn yrði
af skrifaður varð allt vitlaust . Nú stendur til að Jón
Ásgeir fái 50 milljarða króna afskrifað í Nýja Kaup
þingi gegn því að leggja nokkra milljarða inn í 1998
hf . (Og hvaðan fær hann þessa milljarða?)
Hver er skýringin á þessum mun á því að heita Jón
og Jón Ásgeir? Er hún að menn óttast Jón Ásgeir vegna
fjölmiðla hans og tengsla við ákveðna ráðamenn?
Skafti Harðarson á bloggi sínu
á Eyjunni .is, 19 . nóvember 2009 .