Þjóðmál - 01.12.2009, Síða 38
36 Þjóðmál vetur 2009
staklingum línurnar með það hvernig þeir
skuli haga lífi sínu, s .s . borða hollan mat,
hreyfa sig, ekki reykja, ekki tala með fullan
munninn o .s .frv . (lýðheilsustöð) . SUS telur
að aðrir aðilar séu betur til þess fallnir að
sinna lýðheilsuverkefnum . Má þar nefna
íþrótta félög, hjartavernd, tryggingafélög og
mennta stofnanir .
Jafnframt telur SUS að verkefni á borð við
skógrækt og landgræðslu séu betur komin í
höndum landeigenda en ríkisins og það sama
gildi um þjóðgarða . Þá ættu stofnanir eins og
Landmælingar og Flugmálastjórn ekki að vera
á fjárlögum heldur lifa af sértekjum .
Hér er aðeins stiklað á stóru í niður skurð
artillögum SUS en skýrslan er ítarleg og sem
fyrr segir er hægt að skera niður hátt í 73
milljarða króna strax á næsta ári (og meira
til langs tíma) . Vill einhver mótmæla því að
niðurskurðar sé þörf?
Sjálfstæðisflokkurinn
biðjist afsökunar
Þessu til viðbótar fagnar SUS nýlegum efnahags tillögum þingflokks Sjálfstæðis
flokksins en telur jafnframt að þar sé gengið
alltof skammt í átt til lækkunar ríkisútgjalda .
Þó er ekki hægt að horfa fram hjá því að
Sjálfstæðisflokkurinn ber að mestu leyti
ábyrgð á gífurlegri útgjaldaaukningu ríkissjóðs
síð ustu árin og telur SUS að Sjálfstæðisflokk
urinn verði að biðjast afsökunar á sínum þætti
í þeirri þróun . Sú „frjálshyggjutilraun“ sem
vinstri menn tönnlast svo oft á þessa dagana
var ekki meiri en svo að ríkisútgjöld þróuðust í
takt við auknar tekjur ríkissjóðs . Nú er partíið
búið og komið að tiltekt . Þá mega menn ekki
láta timburmennina gera út af við sig og ætlast
til þess að skattgreiðendur þrífi upp .
Þingmenn ríkisstjórnarflokkanna og banda menn þeirra á fjölmiðlum hafa allt
frá hruni varla opnað munninn án þess að
lýsa stjórn ar stefnu fyrri ára sem „taumlausri
ný frjáls hyggju“ (þótt smáfuglarnir hafi aldrei
al veg skilið þann frasa – allra síst forskeytið
„ný“ í þessu sambandi) . Samfélaginu hefur
verið lýst sem einhvers konar tilraunastofu
öfgafullra frjáls hyggjumanna, sem hafi
hér á landi náð í skjóli Sjálfstæðisflokksins
að umbreyta sam félaginu í samræmi við
sína villtustu hug myndir . Í sjálfu sér hefur
þessi kenning ekki verið studd mörgum
stað reyndum eða rökum – en með því að
endur taka hana nógu oft fer ekki hjá því
að áróðursmennirnir og spunakarlarnir hafi
náð nokkrum árangri og haft áhrif á við horf
almennings . Skiptir þá litlu þótt stað reynd
irnar segi einhverja allt aðra sögu .
Fjármálaráðherra svaraði fyrir helgi fyrir
spurn frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur
um atriði, sem skiptir verulegu máli í þessu
sambandi . Þorgerður spurði um fjölg un
starfsmanna hins opinbera, ríkis og sveit ar
félaga frá árinu 2000 . Í svari ráðherra kom
fram, að á þeim tíma hefur stöðugildum
hjá hinu opinbera fjölgað um nálægt 9 .000 .
Fjölg unin er um 27% hjá ríkinu og 32% hjá
sveit arfélögum .
Smáfuglarnir geta gefið þessari þróun
ýmsar einkunnir . Þeim myndi hins vegar
aldrei detta í hug að kalla þetta „taumlausa
ný frjáls hyggju“ .
Fuglahvísl á amx .is, 21 . nóvember 2009 .
Opinberum störfum fjölgar um 30%
– taumlaus nýfrjálshyggja?!