Þjóðmál - 01.12.2009, Side 40
38 Þjóðmál vetur 2009
und arlegt megi virðast augljóslega ekki . Þeir,
fjöl miðlamenn og flestir stjórnmálamenn,
með Al Gore í fararbroddi hafa fengið þá
flugu í höfuðið að hlýjan, vinur alls sem lifir,
sé vond . Hin meinlokan er þó enn undarlegri,
en hún er sú, að heimurinn muni farast, ef
hlýnar eitthvað agnarlítið aftur, um kannski
eina, tvær gráður á næstu hundrað árum,
þannig að loftslag fari aftur að líkast því sem
var t .d . á dögum Grikkja og Rómverja . Þá
voru núverandi sandöldur NorðurAfríku
grónar og helsta kornforðabúr veldisins .
Allt Miðjarðarhafssvæðið var raunar grænna
og grónara en nú og fornleifar sanna, að
vínrækt var stunduð við Hadríanusar
múrinn á landamærum Skotlands . Eins og
íslenskir jöklafræðingar vita voru íslenskir
jöklar á þessum tíma miklu minni en nú,
sumir lítið annað en snjóskaflar, sem sem sjá
má á meðfylgjandi mynd . Hvað gerir það
til þótt slík veðrátta komi aftur? Ég vil taka
þetta skýrt fram vegna þess að bókstaflega
allir sem um þetta mál fjalla ganga út frá því
sem gefnu, að endurhlýnun og afturhvarf til
hins hlýja og raka loftslags á dögum víkinga,
Rómverja (hlýrra en hjá víkingum) eða
Forn Egypta (hlýrra en hjá Rómverjum)
eða jafnvel afturhvarf til bórealsks tíma
þegar flestallar eyðimerkur voru grónar og
Ísland jöklalaust væri eitthvað vont . Svo er
alls ekki . Þvert á móti . Þótt merkilegt megi
virðast sýnast líka flestir, sem eins og ég
blása á gróðurhúsakenningarnar telja, alveg
eins og forsvarsmenn kenningarinnar, að
slík endurhlýnun væri eitthvað sem beri að
forðast og berjast á móti . Svo er alls ekki .
Þótt menn, eða að minnsta kosti Íslendingar, hljóti eins og ég hafa lært það, að veður
var miklu hlýrra fyrr á öldum og árþúsund um
virðast allir aðrir en ég búnir að gleyma því .
Í mesta lagi er þess stundum getið, að veður
hafi verið hlýrra á landnámsöld, sem er út af
fyrir sig rétt, en þá hafði þó kólnað verulega
frá dögum Grikkja og Rómverja þúsund árum
fyrr . Veður á dögum Rómverja hafði aftur
kólnað verulega frá dögum FornEgypta,
sem aftur var kaldara en á hinu „atlantíska“
eða heitasta skeiði bórealska tímans sem
lauk fyrir eitthvað um 6000 árum, skömmu
áður en elstu pýramídar Egypta fóru að rísa .
Þá var hiti mun hærri en „svörtustu“ spár
tölvulíkanasmiða „umhverfisverndarsinna“
gera ráð fyrir, 4–5 stigum hærri en nú . Þá var
Ísland jöklalaust og Sahara algróin eins og
aðrar eyðimerkur . Þetta eru allt beinharðar
staðreyndir sem ég hef vitað um síðan í æsku
og hélt til skamms tíma að væru alkunnar .
Enginn virðist nú muna eftir þessu nema ég .
En lítum nú nánar á málin: Ég lærði eins og
aðrir í barna, gagnfræða og menntaskóla að
við lifum nú á ísöld, þótt hlýskeið sé . Í raun
er loftslag nú afar kalt, sé miðað við jarð
söguna í heild, og raunar einnig á mælikvarða
núverandi hlýskeiðs, sem er eitt af rúmlega 20
slíkum . Menn hljóta að vita, eins og ég, að
mest alla milljarða ára sögu jarðarinnar hefur
hiti verið allt frá tíu og stundum allt að 20
stigum hærri en nú og lítill, og oftast enginn
ís við heimskautin . Mest alla jarðsögu Íslands,
þ .e . á tertíertíma sem nær yfir fyrstu 15–20
milljón (ekki þúsund) árin þar til núverandi
ísöld hófst, var loftslag og gróður hér svipaður
og nú er í NorðurKaliforníu, svo sem sjá má
á surtarbrandslögum og steingervingum á
Tjörnesi og víðar . Slíkt loftslag er Íslandi og
jörðinni allri eðlilegt, ekki ísaldarkuldinn,
sem nú ríkir, þrátt fyrir hlýskeið .
Núverandi hlýskeið ríkjandi ísaldar hófst
með gífurlegu flóði fyrir eitthvað um tíu–tólf
þúsund (ekki milljón) árum . Hiti hækkaði
þá enn einu sinni skyndilega um tíu stig eða
meira á norðurslóðum á minna en manns aldri
alveg án „gróðurhúsaáhrifa“ af mannavöld
um svo jök ulskildirnir miklu bráðnuðu á ör
skömm um tíma .
Menn hafa, sem fyrr sagði, fundið merki
um 20 eða fleiri önnur slík hlýskeið á nú
ver andi ísöld, sem staðið hefur frá upphafi
kvartertímans í allt að þrjár milljónir (ekki